Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi

Þrátt fyrir stefnu Reykja­vík­ur­borgar um jafnan rétt til list­sköp­unar lýsa skóla­stjórn­endur tón­list­ar­skóla þungum áhyggjum af þróun mála. Ald­urs­tak­mörk hafi orðið til þess að vísa þurfti nem­endum úr námi og aðrir kom­ist aldrei að. Sífellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi

Íslend­ingar fylgd­ust stoltir með Hildi Guðna­dóttur raða inn verð­launum fyrir tón­list: Grammy-verð­laun, Golden Globe og Óskarinn. Fleiri íslenskir lista­menn, sem hafa fengið tæki­færi til þess að stunda tón­list­ar­nám á upp­vaxt­ar­ár­unum, hafa náð langt á alþjóða­vett­vangi. 

Enda ætlar Reykja­vík­ur­borg að „verða heims­þekkt menn­ing­ar­borg“, suðu­pottur menn­ingar og lista, líkt og fram kemur í menn­ing­ar­stefnu Reykja­vík­ur­borgar. Þar er áhersla lögð á að listin sé frjáls og að styrkir borg­ar­innar stuðli að efl­ingu list­greina á þeirra eigin for­sendum. Grund­vall­ar­at­riði sé að „allir íbúar hafi jöfn tæki­færi til þess að njóta lista, menn­ingar og menn­ing­ar­arfs bæði sem þátt­tak­endur og neyt­endur. Enginn má vera úti­lok­aður.“ 

Það kveður við sama tón í tón­list­ar­stefnu borg­ar­innar: „Tón­list­ar­borgin Reykja­vík beitir sér fyrir því að efla Reykja­vík sem tón­list­ar­borg með því að skapa hag­stæð skil­yrði fyrir grósku­mikið tón­list­ar­líf.“ 

Þrátt fyrir það lýsa skóla­stjórn­endur og kenn­arar yfir auknum áhyggjum af þróun mál­efna í tón­list­ar­menntun á Íslandi. „Þróunin síð­ustu ár bendir til þess …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár