„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum

Lula Bras­il­íu­for­seti og Flavio Bol­son­aro, mót­fram­bjóð­andi hans, áttu í harka­legum kapp­ræðum viku fyrir síð­ari umferð for­seta­kosn­ing­anna.

„Lygari“ og „trúður“: Eitt stærsta lýðræðisríki heims á krossgötum
For­seta­fram­bjóð­endur Flavio Bol­son­aro og Luiz Inacio Lula da Silva í kapp­ræðum í gær­kvöldi. Síðari umferð for­seta­kosn­ing­anna í Brasilíu fer fram 25. októ­ber. Mynd: NELSON ALMEIDA / AFP

Luiz Inacio Lula da Silva, for­seti Brasilíu, og hægri­s­inn­aði öld­unga­deild­ar­þing­mað­ur­inn Flavio Bol­son­aro réð­ust hvor á annan í fyrstu kapp­ræðum sínum í gær. Kapp­ræð­urnar voru harka­legar, en vika er í síð­ari umferð for­seta­kosn­ing­anna, sem búist er við að verði jöfn.

Kapp­ræð­urnar voru á köflum óreiðu­kenndar. Þeir köll­uðu hvor annan ítrekað lygara, sök­uðu hvor annan um spill­ingu og drógu fram ýmis hneyksl­is­mál. Orða­skipti þeirra end­ur­spegl­uðu tón­inn í harðri kosn­inga­bar­áttu í land­inu, þar sem stjórn­mála­á­grein­ingur er djúp­stæður.

Bol­son­aro, 45 ára sonur fyrr­ver­andi for­set­ans Jair Bol­son­aro, sem er lengst til hægri í stjórn­málum, náði óvæntu for­skoti á Lula í fyrri umferð kosn­ing­anna fyrr í þessum mán­uði. Skoð­ana­kann­anir benda til jafnrar bar­áttu í síð­ari umferð­inni 25. októ­ber.

Þeir tók­ust á um efna­hags­mál, almanna­ör­yggi, heil­brigð­is­mál, spill­ingu og sam­skipti Brasilíu við Banda­ríkin, en Bol­son­aro nýtur stuðn­ings Donalds Trump. Brasilía er fjórða fjöl­menn­asta lýð­ræð­is­ríki heims, á eftir Indlandi, Banda­ríkj­unum og Indónesíu, og ótt­ast stuðn­ings­menn Lula …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lýðræðisþróun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár