Ísrael hefur framið „glæp gegn mannkyninu“ sem felst í útrýmingu á Vesturbakkanum og heldur áfram að fremja „þjóðarmorð“ á Palestínumönnum á Gasasvæðinu, sögðu rannsakendur á vegum Sameinuðu þjóðanna í dag.
Alþjóðleg óháð rannsóknarnefnd SÞ sagði ísraelskar hersveitir einnig hafa framið aðra glæpi gegn mannúð og stríðsglæpi á Vesturbakkanum, sem Ísrael hefur hernumið frá árinu 1967.
Nefndin, sem talar ekki fyrir hönd Sameinuðu þjóðanna sjálfra, komst fyrst að þeirri niðurstöðu í skýrslu í september 2025 að Ísrael hefði framið „þjóðarmorð“ í stríðinu á Gasasvæðinu eftir mannskæða árás Hamas á Ísrael 7. október 2023. Ísrael hafnar þeirri niðurstöðu alfarið.
Í nýrri skýrslu, sem kemur út daginn fyrir þingkosningar í Ísrael, kemst rannsóknarnefndin að þeirri niðurstöðu að Ísrael hafi gert „víðtæka og kerfisbundna árás“ á óbreytta borgara á Vesturbakkanum með hernaðaraðgerðum sem langvarandi ofbeldi landnema hefur styrkt.
„Ísraelsk stjórnvöld og hersveitir hafa framið glæpi gegn mannúð á Vesturbakkanum …























































Athugasemdir