Palestínumenn gætu ráðið örlögum Netanjahús

Tveir listar með arab­ískan meiri­hluta geta skipt sköpum í að fella rík­is­stjórn Benja­míns Net­anja­hús á þriðju­dag.

Þeir munu ekki stjórna Ísrael, en listar þar sem arabar eru í meiri­hluta gætu ráðið úrslitum í hní­f­jöfnum kosn­ingum í land­inu í næstu viku. Kjós­endur þeirra hafa fengið nóg af Benjamin Net­anjahú for­sæt­is­ráð­herra.

Í sam­tölum við AFP sögðu leið­togar list­anna tveggja, sem að mestu eru skip­aðir aröbum, að þeir stefndu að sama marki í kosn­ing­unum 27. októ­ber: að koma frá stjórn sem þeir segja rasíska.

Ísra­elskir arabar, einnig nefndir palest­ínskir rík­is­borg­arar Ísraels, eru um 21 pró­sent íbúa lands­ins.

Þeir eru afkom­endur Palest­ínu­manna sem urðu eftir innan landamæra Ísraels þegar ríkið var stofnað árið 1948. Þeir hafa lengi kvartað undan mis­munun af hálfu gyð­inga­meiri­hlut­ans í Ísrael.

Þróun stjórn­mála í Ísrael reynir mjög á til­finn­ingu arab­íska minni­hlut­ans fyrir því að til­heyra sam­fé­lag­inu. Margir munu ganga að kjör­borð­inu í þeirri von að beina land­inu frá öfga­hægr­inu.

Í kosn­ing­unum á þriðju­dag munu þeir eiga full­trúa á tveimur listum.

…
Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár