Portúgalska lögreglan fjarlægði í nótt enn á ný tjöld sem mótmælendur höfðu reist vegna hækkandi húsnæðisverðs. Skipuleggjendur mótmælanna gagnrýndu ofbeldi lögreglumanna við aðgerðina.
Lögreglan hefur ítrekað tekið niður tjaldbúðir sem risið hafa í Lissabon og Porto á undanförnum vikum. Á sama tíma glíma ríki víða í Evrópu við vaxandi óánægju vegna framfærslukostnaðar.
Í færslu á X sagði lögreglan að lögreglumenn hefðu „gripið inn í snemma í morgun ... til að binda enda á þessar ólöglegu tjaldbúðir“.
„Þegar viðræðum lauk voru 31 handtekinn vegna óhlýðni,“ bætti lögreglan við.
Að sögn lögreglunnar slösuðust 11 manns, átta almennir borgarar og þrír lögreglumenn. Þá voru 171 tjöld fjarlægð.
Portúgalskir fjölmiðlar hafa eftir skipuleggjendum mótmælanna að 37 mótmælendur hafi slasast í aðgerðum lögreglunnar, flestir í Lissabon.
37
…



















































Athugasemdir