Trump hættir við að streyma aftökunni

Forseti Banda­ríkj­anna bregst við and­stöðu við umdeildum áformum Pete Hegseth varn­ar­mála­ráð­herra um að streyma aftöku í beinni útsend­ingu. Trump tekur um leið fram að það hefði haft fæl­ing­ar­mátt að sýna aftök­una og að ást­vinir fórn­ar­lambanna geti verið við­staddir.

Trump hættir við að streyma aftökunni

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti til­kynnti í dag að aftöku manns, sem dæmdur var fyrir fjöldamorð í banda­rískri her­stöð, verður ekki streymt í beinni útsend­ingu.

Með ákvörð­un­inni fellir Trump úr gildi umdeild áform Pete Hegseth varn­ar­mála­ráð­herra. Áformin um að sýna aftöku Nidals Hasan í beinni útsend­ingu höfðu sætt harðri and­stöðu bæði innan Banda­ríkj­anna og á alþjóða­vett­vangi. Þau vöktu meðal ann­ars reiði stjórn­mála­manna úr röðum bæði demókrata og repúblik­ana, kaþ­ólsku kirkj­unnar, mann­rétt­inda­sam­taka og Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ákvörð­unin er áfall fyrir Hegseth, sem hefur þegar sætt mik­illi gagn­rýni vegna stríðs­ins við Íran, sem er komið í patt­stöðu, og afleið­inga þess. Ástandið hefur veikt stöðu Repúblikana­flokks­ins fyrir kom­andi þing­kosn­ingar.

Hasan „verður tek­inn af lífi, eins og áætlað var, af aftöku­sveit, en aftök­unni verður ekki streymt,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­miðli sínum, Truth Social.

„Ef heim­ur­inn fengi að sjá hvernig Banda­ríkin taka á hryðju­verka­mönnum og VIÐBJÓÐI á borð við Hasan …
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár