Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn

Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en búist var við í Texas. Kjós­endur standa frammi fyrir vali á milli tveggja stjórn­mála­manna sem eru gjör­ó­líkir, en sam­ein­ast um eitt: Kristna trú. Á meðan annar fram­bjóð­and­inn stefnir á að verða prestur er hinn þekktur fyrir hneyksl­is­mál.

Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Ólík sýn á trúna Ken Paxton til vinstri og James Talarico til hægri bjóða sig fram til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings í Texas. Þeir leggja ólíka áherslu á kristna trú í stjórn­málum sínum. Mynd: RONALDO SCHEMIDT / AFP

Annar boðar kær­leika og sátt, hinn átök og íhalds­semi. Demókrat­inn James Talarico og repúblikan­inn Ken Paxton vísa báðir til krist­innar trúar í harðri kosn­inga­bar­áttu um sæti í öld­unga­deild Banda­ríkja­þings. Úrslitin í Texas gætu ráðið miklu um hvor flokk­ur­inn nær yfir­ráðum á Banda­ríkja­þingi.

James Talarico, 37 ára fyrr­ver­andi kenn­ari sem stefnir að því að verða prestur í öld­unga­kirkj­unni, er fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins. And­stæð­ingur hans er Ken Paxton, 63 ára repúblikani sem hefur haldið póli­tískum ferli sínum á floti þrátt fyrir fjöl­mörg hneyksl­is­mál, ekki síst vegna holl­ustu sinnar við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta.

Kosn­inga­bar­átta þeirra fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin mun jafn­ari en búist var við í Texas, þar sem eng­inn demókrati hefur náð kjöri í emb­ætti á rík­is­stigi síðan 1994. Kjós­endur standa því frammi fyrir vali á milli tveggja stjórn­mála­manna sem eru gjör­ó­líkir að mörgu leyti.

James Talarico: Stjórnmál kærleikans

Þegar James Talarico var barn á dag­heim­ili kirkj­unnar …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ef trúin flytur fjöll þá er lítið mál að láta hana halda velli hvort sem túlkunin er rétt eða röng.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár