Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn

Kosninga­baráttan fyrir þing­kosningarnar 3. nóvember er orðin jafnari en búist var við í Texas. Kjósendur standa frammi fyrir vali á milli tveggja stjórn­málamanna sem eru gjör­ólíkir, en sameinast um eitt: Kristna trú. Á meðan annar fram­bjóðandinn stefnir á að verða prestur er hinn þekktur fyrir hneykslismál.

Ólík sýn á trúna
Ólík sýn á trúna Ken Paxton til vinstri og James Talarico til hægri bjóða sig fram til öld­unga­deildar Banda­ríkja­þings í Texas. Þeir leggja ólíka áherslu á kristna trú í stjórn­málum sínum. Mynd: RONALDO SCHEMIDT / AFP

Annar boðar kærleika og sátt, hinn átök og íhaldssemi. Demó­kratinn James Talarico og repúblikaninn Ken Paxton vísa báðir til kristinnar trúar í harðri kosninga­baráttu um sæti í öldunga­deild Banda­ríkjaþings. Úrslitin í Texas gætu ráðið miklu um hvor flokkurinn nær yfirráðum á Banda­ríkjaþingi.

James Talarico, 37 ára fyrr­verandi kennari sem stefnir að því að verða prestur í öldunga­kirkjunni, er fram­bjóðandi Demókrata­flokksins. Andstæðingur hans er Ken Paxton, 63 ára repúblikani sem hefur haldið pólitískum ferli sínum á floti þrátt fyrir fjölmörg hneykslismál, ekki síst vegna hollustu sinnar við Donald Trump Bandaríkja­forseta.

Kosninga­barátta þeirra fyrir þing­kosningarnar 3. nóvember er orðin mun jafnari en búist var við í Texas, þar sem enginn demókrati hefur náð kjöri í embætti á ríkis­stigi síðan 1994. Kjósendur standa því frammi fyrir vali á milli tveggja stjórn­málamanna sem eru gjör­ólíkir að mörgu leyti.

James Talarico: Stjórnmál kærleikans

Þegar James Talarico var barn á dagheimili kirkjunnar …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Ef trúin flytur fjöll þá er lítið mál að láta hana halda velli hvort sem túlkunin er rétt eða röng.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár