Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama

Stríðs­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna er for­dæmdur fyrir að boða beina útsend­ingu af aflífun hryðju­verka­manns með aftöku­sveit. Banda­ríkja­for­seti styður aftök­una en segir að sér sé sama hvort henni verði streymt, svo lengi sem mað­ur­inn verði drep­inn.

Aflífun í beinni útsendingu fordæmd en Trump er sama
Trump í dag Sagði blaða­mönnum að honum væri sama hvernig fang­inn yrði drep­inn, svo lengi sem hann yrði drep­inn. Mynd: AFP

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti sagði í kvöld að engin ákvörðun hefði enn verið tekin um hvort aftaka manns sem gerði skotárás á her­stöð yrði sýnd opin­ber­lega, en hann lýsti yfir stuðn­ingi við að dauða­refs­ing­unni yrði full­nægt með aftöku­sveit.

„Þeir eru að taka ákvörðun um það, en hann verður tek­inn af lífi,“ sagði Trump um áform um að streyma beint frá aftöku Nidals Hasan með aftöku­sveit 3. des­em­ber. „Mér er alveg sama hvernig hann fer, svo lengi sem hann fer.“

Vance efast um beint streymi

For­dæm­ing á áformum Banda­ríkj­anna um opin­bera aftöku með aftöku­sveit hers­ins færð­ist í auk­ana í dag, þegar JD Vance vara­for­seti dró í efa að henni yrði streymt beint eins og lagt hefði verið til og full­yrti að hann myndi ekki horfa ef svo yrði.

Aftaka Nidals Hasan – sem er áætluð 3. des­em­ber í Fort Hood í Texas, þar sem hann skaut 13 manns …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu