Galdur brugghús er handverksbrugghús í samfélagseigu, stofnað á Hólmavík á Ströndum árið 2021. Það eru heimamennirnir Finnur Ólafsson og Aleksandar Kuzmanic sem hafa átt veg og vanda að uppbyggingu brugghússins og með stofnun þess vildu þeir styrkja svæðið. Mikill metnaður hefur verið varðandi starfsemina frá upphafi og var strax í byrjun ráðinn þýskur bruggmeistari sem býr og starfar þar vestra.
„Við Aleksandar erum báðir heimamenn og byrjuðum sem heimabruggarar að fikta við þetta. Við fengum svo styrk úr byggðasjóðnum „Sterkar Strandir“ á Hólmavík, gerðum viðskiptaáætlun og í kjölfarið bættust fleiri við hópinn.
Hugmyndin fæddist árið 2021 og við ákváðum að hafa hluthafakynningu og buðum fólki að skrá sig fyrir hlut í stækkun á félaginu. Við höfðum þrjú markmið í þeirri söfnun og náðum við þeim öllum. Við söfnuðum 72 hluthöfum í félagið og köllum okkur samfélagsbrugghús og erum með fimm kjarnaaðila sem hafa tekið að sér að miklu …
















































Athugasemdir