Rubio og Lavrov ræddu möguleika á samtali Trumps og Pútíns

Sam­skipti Banda­ríkj­anna og Rúss­lands fara vax­andi þrátt fyrir að flest Vest­ur­lönd hafi snið­gengið Rússland frá inn­rásinni í Úkraínu. Banda­ríski utan­rík­is­ráð­herr­ann Marco Rubio sagð­ist ekki hafa átt form­legan fund með rúss­neskum starfs­bróður sínum, Sergej Lavrov, en rætt stutt­lega hvort leið­togar ríkj­anna gætu átt sam­skipti í næsta mán­uði.

Rubio og Lavrov ræddu möguleika á samtali Trumps og Pútíns
Samtal Áhugi virð­ist vera á sam­tali eða fundi á milli Trumps og Pútíns, þegar þeir sækja fund APEC í næsta mán­uði. Mynd: EPA

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, sagði í dag að hann hefði rætt við Sergej Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, á fundi G20-ríkj­anna. Þeir hefðu rætt mögu­leg sam­skipti leið­toga ríkj­anna tveggja í næsta mán­uði.

„Við ræddum stutt­lega þann mögu­leika að leið­togar okkar ættu sam­skipti á fundi APEC í næsta mán­uði,“ sagði Rubio. Hann átti við leið­toga­fund Efna­hags­sam­starfs Asíu- og Kyrra­hafs­ríkja (APEC), sem verður hald­inn í kín­versku borg­inni Shenzhen um miðjan nóv­em­ber.

„Það er alltaf mik­il­vægt að Banda­ríkin og Rússland eigi í sam­skiptum á ein­hverjum vett­vangi vegna hætt­unnar á stig­mögnun síðar meir“
Marco Rubio
utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna

Rubio lagði þó áherslu á á blaða­manna­fundi að hann hefði ekki átt form­legan fund með Lavrov á tveggja daga fundi utan­rík­is­ráð­herra G20-ríkj­anna í Atlanta í Georg­íu­ríki. Viðræðum G20-ríkj­anna, hóps stórra hag­kerfa sem meðal ann­ars telur Banda­ríkin, Rússland, Kína, Indland, Frakk­land og Þýska­land, lýkur í dag.

Ummæli Rubios komu degi eftir að rúss­neski utan­rík­is­ráð­herr­ann sagði frétta­mönnum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár