Áróður Orbans Aug­lýs­inga­skilti í Búdapest sýnir for­sæt­is­ráð­err­ann Viktor Orban við text­ann: Sam­ein­umst og stöðvum stríðið. Þá er birt mynd af Volodomyr Zelensky, for­seta Úkraínu, og helsta leið­toga stjórn­ar­and­stöð­unnar, Peter Magyar, við text­ann: Þeir eru hættu­legir. Mynd: AFP

Gremja í „spilltasta landi“ Evrópusambandsins

Ætt­ingjar og æsku­vinur Viktors Orban hafa auðg­ast vel í valda­tíð hans. Nú stendur hann frammi fyrir dómi kjós­enda.

Opin­ber­lega við­ur­kennd auð­æfi Viktors Orban, leið­toga Ung­verja­lands, eru frekar hóf­leg: þónokkur sparn­aður og ein­býl­is­hús í Búdapest sem hann á með öðrum.

En kjós­endur í land­inu sem Transparency International telur það spilltasta í ESB eru á öðru máli. Og þeir gætu látið Orban gjalda fyrir það í þing­kosn­ingum sunnu­dag­inn 12. apríl sem gætu bundið enda á 16 ára valda­tíð hans. Það væri högg fyrir bæði Banda­ríkja­stjórn og Rússland, sem hafa stutt og litið til lík­ans hans að valda­sam­þjöppun og upp­ræt­ingu frjáls­lyndis.

Það er efnahagurinn

Auðurinn sem innsti hringur Orbans hefur safnað sér ýtir undir sívax­andi gremju þjóðar sem glímir við lít­inn hag­vöxt, mikla verð­bólgu og versn­andi opin­bera þjón­ustu.

„Áróð­urs­vél rík­is­stjórn­ar­innar virk­aði vel á meðan efna­hags­á­stand okkar var til­tölu­lega gott,“ sagði Zoltan Ranschburg, stjórn­mála­skýr­andi hjá hug­veit­unni Repu­blikon, við frétta­veit­una AFP.

En það hefur ekki verið gott í mörg ár, bætti hann við.

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Mest lesið undanfarið ár