Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, mun heimsækja Grænland í næsta mánuði til að efla stuðning við sjálfsstjórnarsvæðið, að því er fram kom í Brussel í dag, eftir kröfur Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að taka yfir stjórn þess.
Von der Leyen mun hitta Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, og Jens-Frederik Nielsen, forsætisráðherra Grænlands, í tveggja daga heimsókn sem hefst 6. september.
„Við þetta tækifæri mun von der Leyen forseti undirrita sameiginlega yfirlýsingu ESB og Grænlands,“ sagði Paula Pinho, talskona ESB.
„Þessi heimsókn undirstrikar skuldbindingu Evrópu gagnvart norðurslóðum, öryggi þeirra og samvinnu – sem er lykilatriði fyrir Evrópusambandið.“
Trump hefur valdið spennu í samskiptum við Danmörku og evrópska bandamenn með ítrekuðum fullyrðingum sínum um að Bandaríkin ætti að innlima Grænland.
Hann virðist að mestu hafa dregið þessar kröfur til baka eftir að viðræður hófust við Danmörku og Grænland um framtíðarhlutverk Bandaríkjanna á þessari auðlindaríku eyju.
Í kjölfar hótana Trumps lofaði …





















































Athugasemdir