Er loksins farið að slá á MAGA-æðið? Mun bandaríska hægrinu takast að losa sig við popúlíska hugmyndafræði Donalds Trumps og hverfa aftur til hefðbundnari íhaldsstefnu?
Eftir afgerandi ósigur í þingkosningum á miðju kjörtímabili, sem snerust fyrst og fremst um einn mann, veltu margir repúblikanar því fyrir sér í gær hvert flokkurinn stefnir og hvort Trump forseti muni eiga þátt í að móta framtíð hans.
Leiðarasíður Wall Street Journal hafa talist vera málsvari hins hefðbundna hægris. Þar er nú krafist „sjálfsskoðunar“ og hvatt til þess að horfið verði frá þeirri öfgaþjóðernishyggju og orðræðu um sjálfsmynd sem stuðlaði að valdatöku forsetans, sem er kominn á níræðisaldur.
„Tollar og fjöldabrottvísanir koma ekki í stað hækkandi rauntekna. Það að höfða til MAGA-karlaklúbbsins kemur ekki í stað þess að sannfæra kjósendur af rómönskum uppruna, óháða kjósendur og sveiflukjósendur í úthverfum, sem sneru baki við flokknum á þriðjudag,“ skrifaði ritstjórn blaðsins í gærmorgun.
…



























Athugasemdir