Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag

Stefnt er að arðr­greiðslum til eig­enda fast­eigna­fé­lags­ins sem leigir meðal ann­ars hús­næði til hjúkr­un­ar­heim­ila og leik­skóla, eftir að leigan hækk­aði 3,1% umfram verð­lag.

Fasteignafélagið Heimar hagnast umfram verðlag
Auknar leigu­tekjur Halldór Benjamín Þor­bergs­son. Leigu­tekjur Heima juk­ust um 12,2% milli ára á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2026 og félagið stefnir á auknar arð­greiðslur.

Fast­eigna­fé­lagið Heimar stefnir á auknar arð­greiðslur til hlut­hafa eftir að hafa aukið leigu­tekjur sínar umfram verð­bólgu á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2026.

Heimar fá 42 pró­sent af tekjum sínum frá hinu opin­bera og skráðum félögum. Leigu­tekjur félags­ins juk­ust um 12,2 pró­sent á milli ára. Til við­bótar hífir mats­breyt­ing á eignum upp hagnað félags­ins. Alls er hagn­að­ur­inn 46,5 pró­sentum hærri fyrstu mán­uði 2026 en á sama tíma­bili í fyrra, eða 5,2 millj­arðar króna fyrir tekju­skatt.

Vegna góðrar afkomu hefur stjórn Heima tekið „stefnu­mark­andi ákvörðun,“ segir í kynn­ingu félags­ins eftir lokun mark­aða í dag. Þannig var sam­þykkt „ný arð­greiðslu­stefna sem byggir á traustum und­ir­liggj­andi rekstri og skýrri fjár­fest­inga­stefnu“.

„Stefnt er að því að ráð­stafa árlega fjár­hæð sem nemur að lág­marki 60% af hand­bæru fé frá rekstri til hlut­hafa,“ segir Halldór Benjamín Þor­bergs­son, for­stjóri Heima, í yfir­lýs­ingu vegna upp­gjörs­ins. „Stjórn horfir í auknum mæli til arð­greiðslna umfram end­ur­kaup. Áherslu­breyt­ingin end­ur­speglar …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár