Hafa hagnast um 24 milljarða í ár en gagnrýna hækkun bankaskatts

Hagnaður Arion banka jókst um hálfan milljarð króna á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra og nam 8,7 milljörðum króna. Arðsemi eigin fjár var 16,3 prósent. Banka­stjórinn gagnrýnir fyrir­hugaða hækkun banka­skatts sem gæti kostað bankann 1,7 milljarða króna á þessu ári.

Gagnrýnir bankaskatt
Gagn­rýnir banka­skatt Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir fyr­ir­hug­aða hækkun banka­skatts skamm­sýna. Bankinn hagn­að­ist um 24,1 millj­arð króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Mynd: Arion banki

Arion banki hagnaðist um 8,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi ársins, saman­borið við 8,2 milljarða á sama tímabili í fyrra. Hagnaðurinn jókst því um rúmlega sex prósent milli ára, samkvæmt uppgjöri bankans sem birt var í gær.

Arðsemi eigin fjár var 16,3 prósent á fjórðungnum, saman­borið við 16 prósent á sama tíma í fyrra. Hagnaður bankans á fyrstu níu mánuðum ársins nam alls 24,1 milljarði króna, sem er lítillega minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 24,4 milljörðum.

Benedikt Gíslason, banka­stjóri Arion banka, segir í afkomu­tilkynningu bankans afkomuna góða og í samræmi við markmið. Hann bendir á að innlán hafi haldið áfram að aukast en hægt hafi á útlána­vexti vegna viðvarandi hás vaxta­stigs.

Innlán viðskipta­vina jukust um 33 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi, eða 3,3 prósent, á meðan útlán til viðskipta­vina drógust saman um þrjá milljarða króna.

Hreinn vaxta­munur bankans, sem …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár