Mjólkursamsalan segist vera fórnarlamb í fernumálinu

For­svars­menn Mjólk­ur­sam­söl­unnar segja að engar kröfur séu á fyr­ir­tæk­inu að vita hvað verði um þær millj­ónir ferna sem fyr­ir­tækið fram­leiðir á hverju ári.

Mjólkursamsalan segist vera fórnarlamb í fernumálinu
Von­brigði Björn vöru­þró­un­ar­stjóri og Aðal­steinn sölu- og mark­aðs­stjóri voru hissa þegar þeir lásu um hvað orðið hefur um mjólk­ur­fern­urnar. Mynd: Heimildin / Davíð Þór

For­svars­menn Mjólk­ur­sam­söl­unnar, sem er stærsti not­andi á fernum á Íslandi og not­ast við um 40 millj­ónir slíkar á hverju ári, segja að umfjöllun Heim­ild­ar­innar um að nán­ast engar fernur hafi farið í end­ur­vinnslu á und­an­förnum árum hafi komið þeim veru­lega á óvart. 

Þeir hafi talið að ferlið fyrir end­ur­vinnslu á fernum hafi verið í lagi síðan 1997. Mjólk­ur­sam­salan hafi verið í góðum sam­skiptum við sænsk-sviss­neska fyr­ir­tækið Tetra Pak, sem fram­leiðir fern­urnar, sem hafi tjáð þeim að fernur væru auð­veld­lega end­ur­vinn­an­legar. Þá segja þeir að það sé ekki hlut­verk Mjólk­ur­sam­söl­unnar að stað­festa hvort fernur frá þeim fari í raun og veru í end­ur­vinnslu.

Mikil vonbrigði

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar sett­ist niður með þeim Aðal­steini H. Magn­ús­syni, sölu- og mark­aðs­stjóra Mjólk­ur­sam­söl­unnar, og Birni S. Gunn­ars­syni, vöru­þró­un­ar­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins, til að fara yfir hvað fyr­ir­tækið vissi í raun og veru um hvað yrði um þær fernur sem fyr­ir­tækið …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Ef framleiðandi fernanna fullyrðir að fernurnar séu full endurvinnanlegar getur MS bara látið senda þeim notaðar fernur til endurvinnslu. Einfalt.

    En skaðinn af þessu lendir ekki á MS, frekar en annað þar sem landbúnaðarafurðir eru annars-vegar. Það verða 100% almenningur sem verður látinn bera skaðann
    0
  • sigursteinn Tómasson skrifaði
    er ekki konan til forsstjórans í mjólkursamsölunni , umbods madur fyrir tetrabak svo varla eru theirr fórnalömp.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fernurnar brenna

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár