23. mars síðastliðinn, daginn fyrir þingkosningar í Danmörku, fóru fram í danska sjónvarpinu TV2 hefðbundnar leiðtogaumræður. Þeir sem bjuggust við hörðum deilum um helstu átakamál urðu fyrir vonbrigðum, því flestir leiðtogarnir voru sammála um eitt mál: að draga úr svínaeldi til útflutnings, bæta aðbúnað á svínabúum og draga úr mengun frá landbúnaði. Það skýtur því skökku við að útflutningur á dönskum grísum hefur aldrei verið meiri en nú.
Í aðdraganda þingkosninganna í Danmörku fyrr á þessu ári áttu flestir Danir von á því að varnar- og öryggismál, þar með talin málefni Grænlands og samskiptin við Bandaríkin, yrðu helsta kosningamálið. Þau mál höfðu verið efst á baugi um margra mánaða skeið ásamt umfjöllun um vaxandi ofbeldi og glæpi, sem sumir þingmenn tengja einkum við fólk af erlendum uppruna. Þessi mál voru lítt áberandi í kosningabaráttunni, svolítið var fjallað um skólamál en varla minnst á efnahagsmál, sem verður að teljast óvenjulegt. Svín, jarðvegs- og vatnsmengun voru stóru málin fyrir kosningar.
Þjóðarréttur og útflutningsvara
Þegar minnst er á danskan mat kemur svínakjöt iðulega fyrst upp í hugann: kótilettur, beikon, snitsel, kjötbollur og purusteik, svo fátt eitt sé nefnt af þeim afurðum sem unnar eru úr svínakjöti og Danir leggja sér til munns. Miðað við höfðatölu fæðast hvergi í veröldinni jafnmargir grísir og í Danmörku, eða um 40 milljónir árlega undanfarin ár. Danir eru rúmlega 6 milljónir. Fjórðungur þessara 40 milljóna kemur dauður í heiminn eða drepst fljótlega. 30 milljónir komast á legg. Tölur sýna líka að hver einasti Dani hesthúsar árlega, ef svo má að orði komast, um það bil 30 kíló af svínakjöti. Ef neysla ferðamanna sem leggja leið sína til Danmerkur er talin með nemur innanlandsneyslan því sem svarar til kjöts af 14 milljónum grísa en 16 milljónir eru fluttir út á fæti, ýmist sem smágrísir eða í sláturstærð. Þetta eru tölur frá árinu 2025. Stærstu kaupendur hafa um árabil verið Þjóðverjar og Pólverjar. Á síðasta ári nam útflutningsverðmæti grísa og svínakjöts um 40 milljörðum danskra króna, sem jafngildir um það bil 730 milljörðum íslenskra króna.
Þurfa mikið fóður og vatn
Danmörk er lítið land, aðeins um 40 þúsund ferkílómetrar. Til samanburðar er Ísland 103 þúsund ferkílómetrar. Ræktunarland í Danmörku er takmarkað og þótt svínaeldið sé fyrirferðarmikið eru svínin ekki einu ferfætlingarnir á dönskum bændabýlum. Danski nautgripastofninn telur um það bil 1,4 milljónir, þar af eru mjólkurkýr 550 þúsund. Nautgripir þurfa, líkt og svínin, mikið fóður og ræktunarland í Danmörku nægir ekki til að ala allan þennan fjölda og því er nauðsynlegt að flytja inn í stórum stíl fóður fyrir milljarða á hverju ári. Sojabaunir frá Brasilíu og Argentínu eru stór hluti þessa innflutnings.
Nautgripir og svín þurfa einnig mikið vatn, sem er í Danmörku, eins og víða um heim, takmörkuð auðlind.
40 milljónir
Stórar tölur
Dönsk mjólkurkýr þarf daglega að innbyrða 60–80 kíló af fóðri og 100–150 lítra af vatni. Þótt svínin séu léttari á fóðrum þurfa þau eigi að síður sitt, bæði fast og fljótandi. Danski svínastofninn lætur frá sér allt að 40 milljónum tonna af hlandblönduðum skít, gylle, á hverju ári. Dönsk mjólkurkýr lætur frá sér að minnsta kosti 60 kíló af mykju á hverjum degi, um það bil 22 tonn á hverju ári. Þótt talsverður hluti þessa „úrgangs“ sé endurnýttur, ef svo mætti að orði komast, til áburðar veldur þetta gríðarlega magn miklu álagi á móður jörð, nokkuð sem fáir hugsuðu út í þangað til fyrir fáum árum. Náttúruverndarsamtök töluðu fyrir daufum eyrum.
Ögurstund
Í umræðum í aðdraganda þingkosninganna fyrr á árinu sagði Magnus Heunicke, þáverandi umhverfisráðherra, að komið væri að ögurstund í umhverfismálum og nefndi sérstaklega svínaeldið. Hann spurði hvort æskilegt væri að ala 16 milljónir grísa til útflutnings. Hann svaraði spurningunni sjálfur og sagði að þessi mikli útflutningur væri alltof dýru verði keyptur og að nauðsynlegt væri að draga úr honum. Svo nefndi hann líka vatnið og mikla notkun tiltekinna efna (pesticider) í landbúnaði. Mörgum brá við orð ráðherrans, einkum um þennan gríðarmikla útflutning á grísum. Samtök umhverfisverndarsinna hafa lengi bent á hættuna sem fylgir jafnmikilli notkun skaðlegra efna og gert hefur verið í dönskum landbúnaði en lítt orðið ágengt. Venstre-flokkurinn, sem hefur fram til þessa verið ötull málsvari bænda og ekki mátt heyra minnst á að draga úr notkun skaðlegra efna í landbúnaði, skipti um kúrs í kjölfar kosninganna og flokksforystan styður nú takmörkun þessara efna. Þetta hefur valdið mikilli ólgu innan flokksins og formaðurinn Troels Lund Poulsen verið sakaður um svik við bændur.
Stefnt að miklum samdrætti
Eftir að endurnýjuð og breytt stjórn undir forystu Mette Frederiksen tók við völdum að loknum kosningum í mars lýsti stjórnin því yfir að dregið skyldi verulega úr útflutningi smágrísa. Áhrifin yrðu þau að eldisgrísum í landinu myndi fækka, sem væri gott fyrir umhverfið, ekki síst vatnsbúskapinn. Í þessu sambandi var talsvert rætt um hollensku leiðina svonefndu en hún felst í því að vilji svínabóndi hætta búskap kaupir ríkið hann út, byggingar á búinu rifnar og ekki má þar hefja svínaeldi á ný. Markmið dönsku stjórnarinnar, sem kannski væri réttara að nefna langtímamarkmið, væri, að sögn ráðherra, að fjöldi grísa sem alinn væri takmarkaðist við þörfina á heimamarkaði.

Útflutningur aldrei verið meiri
Fyrir rúmri viku sendu dýraverndunarsamtökin Dyrenes Beskyttelse frá sér langa grein sem vakti mikla athygli þegar hún birtist í dönskum fjölmiðlum. Þar kom fram að þrátt fyrir hástemmdar yfirlýsingar ráðherra um að draga stórlega úr útflutningi á grísum og miða fyrst og fremst að eldi til innanlandsnota hefur útflutningur á grísum, einkum grísum í sláturstærð, stóraukist. Í september síðastliðnum var fjöldi sláturgrísa sem fluttur var út meiri en nokkru sinni fyrr. Eins og nefnt var fyrr í þessum pistli nam útflutningur lifandi grísa, smágrísa og grísa í sláturstærð, 16 milljónum á síðasta ári.
Tölurnar sem birtust í grein dýraverndunarsamtakanna voru fengnar úr gögnum dönsku Matvælastofnunarinnar. Dagblaðið Politiken fjallaði ítarlega um „grisesagen“ og ástæður þess að útflutningur grísa í sláturstærð hefur aukist. Ein skýring þessarar aukningar er sú að fyrirtækið Danish Crown, sem annast slátrun og vinnslu grísa, hafði ekki undan og þurfti þess vegna að senda sláturgrísi úr landi. Danish Crown er langstærsta fyrirtækið á þessu sviði í Danmörku og um helmingur þeirra grísa sem sendir voru úr landi var á vegum þess.
16 milljónir
Útlendingar borga betur
Skýring Danish Crown segir ekki alla söguna. Komið hefur í ljós að kjötvinnslur í Þýskalandi, Póllandi og fleiri löndum borga meira fyrir grísina en dönsku fyrirtækin. Að undanförnu hefur útflutningur til Ungverjalands aukist mikið og dýraverndunarsamtökin hafa lýst sérstökum áhyggjum vegna þess. Fjarlægðin frá Norður-Jótlandi, þar sem flest svínabúin er að finna, til Ungverjalands er um 18 hundruð kílómetrar og ferðalagið tekur um sólarhring, jafnvel lengri tíma, og dýraverndunarsamtökin segja þetta algjörlega óviðunandi. Grís í sláturstærð vegur í kringum 100 kíló og á þessu langa ferðalagi standa dýrin þétt saman, með mjög takmarkaðan aðgang að vatni og iðulega engan að fóðri.
Eins og áður var nefnt vakti grein dýraverndunarsamtakanna mikla athygli og ef að líkum lætur kemur „grisesagen“ til kasta danska þingsins áður en langt um líður.




















































Athugasemdir