Ég var vel virkur og líflegur krakki og sennilega líka uppátækjasamur. Ekki barnanna bestur en samt sem áður með innra bremsukerfi sem virkaði oftast þegar á þurfti að halda. Skólinn var þrísetinn með 30 börn í bekk og fimm til sex bekki í árgangi þar sem börnum var skilmerkilega skipað í bekki eftir „getu“ frá „gáfuðum“ börnum niður í „tossabekk“. Þetta var dálítið skrýtið fannst manni, barninu, óvitandi um hvílík „stéttaskilvinda“ skólakerfið var á þessum árum og er að einhverju leyti enn.
Að verða málsvari
Viðhorf flestra til þessara barna sem minna máttu sín voru oft niðrandi, bæði af hálfu þeirra sem eldri voru, skólans og kerfisins. Viðhorf sem smitast í barnahópinn. Þessi börn voru stimpluð og áttu sér vart viðreisnar von. Sek um að koma frá fátækum heimilum, búa við félagslega erfiðar aðstæður eða að glíma við einhverjar persónulegar áskoranir sem skólakerfi samtímans tekur að meira leyti …

























































Athugasemdir