Hæstiréttur Noregs úrskurðaði í dag að þrjú leyfi sem stjórnvöld veittu til olíuvinnslu í Norðursjó væru ógild þar sem ekki hefði verið tekið nægilegt tillit til áhrifa þeirra á losun gróðurhúsalofttegunda.
Dómstóllinn féllst á rök loftslagsverndarsinna sem höfðu dregið gildi leyfanna í efa. Þeir héldu því fram að í mati á umhverfisáhrifum hefði ekki verið tekið tillit til losunar við bruna olíunnar eftir að hún væri unnin.
Loftslagsverndarsinnarnir höfðu áður haft sigur í málum fyrir tveimur dómstólum á lægra dómstigi.
Hæstiréttur úrskurðaði að áætlanir um vinnslu og stækkun væru „ógildar vegna annmarka á málsmeðferð“. Dómstóllinn benti á að þótt losun hefði verið metin hefði matið aðeins náð til svokallaðrar losunar við vinnslu, en ekki þeirrar „losunar við bruna“ sem kæmi síðar.
Að sögn dómstólsins verður „losun við bruna sem hlýst af olíuvinnslu að sæta mati á umhverfisáhrifum“ áður en áætlun er samþykkt.
Hæstiréttur fjallaði …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir