Njósnahneyksli felldi forstjóra Nvidia af stalli

Jensen Huang, einn stofn­enda tækniris­ans Nvidia og for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins til 33 ára, hefur sagt upp störfum. Upp komst um ást­ar­sam­band hans við konu sem banda­rísk yfir­völd telja hafa starfað fyrir kín­versku leyni­þjón­ust­una. Hluta­bréf fyr­ir­tæk­is­ins hafa verið á nið­ur­leið síð­ustu daga.

Fráfarandi forstjóri
Frá­far­andi for­stjóri Jensen Huang, stofn­andi og for­stjóri Nvidia, hefur sagt af sér og vikið úr stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Mynd: Jung Yeon-je / AFP

Jensen Huang, for­stjóri banda­ríska tækniris­ans Nvidia, hefur sagt af sér og vikið úr stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Afsögnin kemur í kjöl­far þess að upp­lýst var um ást­ar­sam­band hans við konu sem banda­rískir emb­ætt­is­menn telja hafa starfað fyrir kín­versku leyni­þjón­ust­una.

Nvidia hefur ekki gefið upp ástæðu starfs­loka hans. Fyr­ir­tækið hafði áður hafið rann­sókn á málum Huangs, sem við­ur­kenndi í tölvu­pósti til starfs­manna að hafa verið eig­in­konu sinni ótrúr og sagð­ist vera „inni­lega miður sín“.

Samkvæmt fréttum átti Huang í ást­ar­sam­bandi við Alice Huang, fyrr­ver­andi stjórn­anda hjá tækni­fyr­ir­tæk­inu Megaspeed í Singapúr. Þau eru ótengd þrátt fyrir að bera sama eft­ir­nafn.

Málið tók nýja stefnu á mið­viku­dag þegar banda­ríska dag­blaðið The New York Times greindi frá því að Huang hefði einnig átt í öðru ást­ar­sam­bandi utan hjóna­bands, við stjórn­anda hjá Nvidia sem starf­aði undir hans stjórn.

Huang hefur á und­an­förnum árum orðið náinn og óform­legur ráð­gjafi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár