Bandarískir þingmenn hafa boðað Jensen Huang, einn helsta frumkvöðul uppgangs gervigreindar, fyrir þingnefnd til að svara spurningum. Hann á að koma fyrir nefndina í desember. Huang lét af störfum sem forstjóri Nvidia eftir að upp komst um tvö framhjáhöld hans, meðal annars við konu sem grunuð er um að vera kínverskur njósnari.
Hneykslið hefur lækkað markaðsvirði Nvidia um nærri 500 milljarða dollara, eða um 61,6 billjónir króna. Það hefur vakið áhyggjur af þjóðaröryggi og skapað óvissu í gervigreindariðnaðinum.
„Nýlegar fréttir vekja alvarlegar áhyggjur af þjóðaröryggi okkar og vernd viðkvæmrar bandarískrar tækni,“ skrifaði Tim Scott, öldungadeildarþingmaður Repúblikanaflokksins, á X í gær.
Scott sagðist hafa óskað eftir því að Huang og Howard Lutnick viðskiptaráðherra bæru vitni í desember fyrir bankamálanefnd öldungadeildarinnar, sem Scott er formaður í.
Þrjár nefndir fulltrúadeildarinnar hafa einnig kallað hinn 63 ára gamla Huang, sem er þekktur fyrir að klæðast leðurjakka, í viðtal fyrir …
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir