Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga

Elli­líf­eyr­is­greiðsl­ur hafa mið­að við of lágt frí­tekju­mark í nær ára­tug sam­kvæmt orða­lagi laga. Millj­arð­ar eru und­ir en Trygg­inga­stofn­un túlk­ar lög­in út frá lög­skýr­ing­ar­gögn­um. Skrif­stofa Al­þing­is seg­ir lög­in ekki upp­fylla kröf­ur og ráðu­neyt­ið hyggst skoða hvort þeim þurfi að breyta.

Reikna ellilífeyri rangt samkvæmt orðalagi laga
Tryggingastofnun Framkvæmd Tryggingastofnunar hefur verið staðfest af úrskurðarnefndum.

Tryggingastofnun reiknar ellilífeyrisgreiðslur rangt samkvæmt texta laga um almannatryggingar en orðalag þeirra virðist hafa breyst fyrir mistök árið 2017. Síðan þá hafa opinberir aðilar varið útreikninga stofnunarinnar þar sem augljóslega hafi ætlunin ekki verið að breyta framkvæmdinni.

Málið varðar greiðslur Tryggingastofnunar á ellilífeyri en við útreikning fulls ellilífeyris hafa lífeyrisþegar tvö frítekjumörk. Annars vegar nemur almennt frítekjumark 720 þúsund krónum á ári en hins vegar er einnig sérstakt frítekjumark vegna atvinnutekna sem nemur 2,4 milljónum króna á ári.

Í lögum um almannatryggingar var til ársins 2017 sérstaklega tekið fram að greiðslur úr atvinnutengdum skyldubundnum lífeyrissjóðum teldust ekki vera atvinnutekjur í skilningi laganna. Þær falli því ekki undir sérstaka frítekjumarkið.

Við breytingar á lögunum árið 2017 féll það orðalag hins vegar út og því ekkert í lögunum sem segir að 2,4 milljón króna frítekjumark eigi ekki að gilda um greiðslur úr lífeyrissjóðunum.

Björn Leví Gunnarsson, fyrrverandi þingmaður Pírata, sem sat …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
2
ViðtalLífið á Grensás

„Þeg­ar þú ert með flók­in dæmi vilja kerf­in illa tala sam­an“

Yf­ir­lækn­ir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eft­ir út­skrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eft­ir þjón­ustu. Heilask­að­ar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyld­ur og nærsam­fé­lag­ið en gef­andi sé að sjá fólk halda aft­ur út í líf­ið eft­ir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
3
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár