Fulltrúi Íslands sat áfram meðan tugir gengu úr salnum undir ræðu Netanyahu

Tugir fulltrúa gengu úr salnum þegar Benjamín Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, hóf ræðu sína á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins. Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra var á sama tíma á fundi til stuðnings Palestínu­flóttamanna­hjálp SÞ.

Netanyahu brást við útgöngunni úr pontu og kallaði fulltrúana sem yfirgáfu salinn „moral cowards“, eða siðferðilega hugleysingja.
Net­anyahu brást við útgöng­unni úr pontu og kall­aði full­trú­ana sem yfir­gáfu sal­inn „moral cowards“, eða sið­ferði­lega hug­leys­ingja. Mynd: ANGELA WEISS / AFP

Ísland tók ekki þátt í fjölda­útgöngu fulltrúa á allsherjar­þingi Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanyahu, forsætis­ráðherra Ísraels, steig í pontu í New York í dag. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins á meðan tugir annarra fulltrúa yfirgáfu salinn.

Þetta stað­festir aðstoðar­maður utan­ríkis­ráðherra við Heimildina.

Erlendir fjöl­miðlar greina frá því að tugir fulltrúa hafi gengið úr salnum þegar Netanyahu hóf ræðu sína. Myndir frá þinginu sýna fjölda auðra sæta eftir útgönguna.

Palestínska sendi­nefndin hafði fyrir ræðuna hvatt önnur ríki til að fjölmenna í salinn og ganga síðan sameiginlega út þegar Netanyahu yrði kynntur til leiks.

Netanyahu brást við útgöngunni úr pontu og sagði þá sem enn kynnu að vilja yfirgefa salinn vera „moral cowards“, eða siðferði­lega hugleysingja. Fundar­stjóri þurfti ítrekað að kalla eftir ró þegar hróp, baul og lófatak heyrðust í salnum.

Þorgerður á UNRWA-fundi á sama tíma

Þorgerður Katrín Gunnars­dóttir utan­ríkis­ráðherra var ekki …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Allt er þetta nú í krafti $ dollara, morðingjar og yfirlýstir glæpamenn fá leyfi til að bulla á þessum sameginlega stað okkar allra Sameinuðu þjóðunum. Nokkrir vinir hafa tekið höndum saman um að ræna þjóðhöfðingum, stela auðlindum og myrða heilu þjóðirnar, há stríð vegna græðgi og gamalla ritninga, eiðileggja verðmæti og eyða landbúnaði svo eitthvað sé nefnt. Og við fáum ekki rönd við reist.
    3
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Did the other Nordics keep their seat or leave the chamber?
    0
  • ÁGS
    Ásgeir Grétar Sigurðsson skrifaði
    Af hverju var þjóðarmorðinginn ekki handtekinn á þessum fundi? Hvers virði eru handtökuskipanir sameinuðu þjóðanna gegn glæpamönnum? Alþjóðalög eru gjörsamlega ónýt.
    Mikil er skömm okkar íslendinga þarna, eina ferðina enn að sitja og hlusta á helvítið - Eru morðin orðin 90.000 fyrir utan særða og veraldlegt tjón? - og engar afleiðingar?? 😪
    4
  • Kristján Þór Sigurðsson skrifaði
    Hvaða vopnahlé?????
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár