Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist

Wojciech Jarosz vann á Kefla­vík­ur­flug­velli en eftir örlaga­ríkt frí í Karí­ba­haf­inu sækir hann nú end­ur­hæf­ingu á Grens­ás­deild í von um að geta staðið aftur upp einn dag­inn. Sjald­gæfur kvilli sem byrj­endur á brim­brettum geta fengið olli lömun fyrir neðan mitti.

Prófaði brimbretti í fyrsta skipti og lamaðist

Wojciech Jarosz kom til Íslands fyrir fjórum árum og vann sem stjórn­andi í far­ang­urs­þjón­ustu á Kefla­vík­ur­flug­velli. „Ég kynnt­ist unnust­unni minni á Íslandi, hún er ynd­is­leg mann­eskja,“ segir hann.

Hann er nú 28 ára gam­all og stundar end­ur­hæf­ingu á Grens­ás­deild eftir að frí í Karí­ba­haf­inu reynd­ist honum örlaga­ríkt. „Ég er hérna til að venja líf mitt við notkun hjóla­stóls og standa á fætur einn dag­inn,“ segir hann. „Ég sakna vina minna og fjöl­skyldu í Póllandi en bráðum fer ég þangað í frí og sé þau öll. Svo það gleður mig. Það er mik­il­vægt að vinna ekki bara í lík­am­legri getu heldur einnig and­legu hlið­inni.“

Áfallið átti sér stað þegar hann ferð­að­ist til kar­ab­íska eyrík­is­ins Trinidad & Tobago til að upp­lifa kjöt­kveðju­há­tíð­ina með vini sínum sem hann kynnt­ist einnig á Íslandi. „En áður en karni­valið byrj­aði ákvað ég að læra á brim­bretti,“ segir hann. „Ég vil ekki segja að það hafi verið …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“
ViðtalLífið á Grensás

„Þegar þú ert með flókin dæmi vilja kerfin illa tala saman“

Yfir­læknir og deild­ar­stjóri á Grens­ás­deild segja ungt fólk mæta fjölda áskor­ana eftir útskrift af deild­inni. Dæmi séu um að ungt fólk sé sent á elli­heim­ili eða bíði í lengri tíma eftir þjón­ustu. Heilaskaðar hjá ungu fólki geta reynt á maka, fjöl­skyldur og nær­sam­fé­lagið en gef­andi sé að sjá fólk halda aftur út í lífið eftir vel heppn­aða end­ur­hæf­ingu.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár