„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Halla Bergþóra Björns­dóttir tók í vor við emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra. Hún á að baki langan feril innan lög­gæsl­unnar og hefur orðið vitni að ýmsu. „Það er svo margt sem getur gerst hjá fólki. Mannleg hegðun kemur sífellt á óvart. Margt sem ég sé og upp­lifi sem fólk gerir er eitt­hvað sem ég gæti ekki logið til um.“

Sjálf er hún alin upp í sveit og lærði snemma að beita inn­sæ­inu til að lesa í nátt­úr­una og hegðun og atferli dýra, sem gaf góðan grunn til að læra að lesa í fólk. „Það hjálpar mér þegar ég þarf að eiga við fólk til að meta hvernig er gott að bregð­ast við og nálg­ast fólk. Þessi nær­gætni nýt­ist mér í starfi þar sem ég er oft að tala við fólk sem hefur lent í ýmsu og þú þarft að reyna að skilja og hlusta og með­taka það sem það hefur að segja. Svipað …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár