Mynd: Shutterstock

Kvíði, álag og lélegur svefn geta aukið verki

Verkir eru algengasta ástæða þess að fólk leitar til heilbrigðis­þjónustunnar. Grundvallar­munur er á hvernig verkir eru meðhöndlaðir eftir gerð. Það eru þó ýmsar bjargir sem fólk hefur hér á landi til að fá meðferð við verkjum og til sjálfs­hjálpar.

Sigríður Zoëga, sérfræðingur í hjúkrun, dósent við hjúkrunar- og ljósmóður­fræði­deild Háskóla Íslands og deildar­stjóri Verkja­miðstöðvar Land­spítala, segir verki oft flókið fyrirbæri en þá má flokka í bráða og langvinna.

Sigríður segir langvinna verki skerða lífsgæði fólks verulega, hamli félags­legum samskiptum og séu algeng orsök örorku og atvinnu­skerðingar. Þá eru tölur yfir einstaklinga með langvinna verki háar á Íslandi og á norðlægum slóðum. 

September­mánuður er tileinkaður vitundar­vakningu um verki og verkja­stjórnun. 

Stundum er orsökin ekki þekkt 

Hvers vegna myndast verkur eða sársauki? „Það geta verið ýmsar ástæður fyrir því og í sjálfu sér er verkur viðbrögð líkamans til að vara okkur við að það sé hugsanlega eitthvað að. Þannig að þegar við fáum boð frá viðtökum í húð og líffærum um að eitthvað kunni að vera að, þá berast þau til miðtaugakerfisins (heila og mænu) þar sem þau eruð flokkuð og túlkuð sem verkir.“ 

Verkir …
Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár