Borgin segir upp leigu í skugga dagsekta

Slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hugð­ist beita borg­ina dag­sektum vegna ófull­nægj­andi eld­varna. Ákveðið var að segja upp samn­ingum í stað þess að fara í kostn­að­ar­samt við­hald. Eitt hús­anna var gert upp fyrir 150 millj­ónir fyrir fimm árum síðan.

Borgin segir upp leigu í skugga dagsekta
Stór­bruni Slökkvi­liðið fór í mikla úttekt eftir bruna í leik­muna­geymslu á Gufu­nes­inu. Borgini var hótað dag­sektum ef hún bætti ekki úr bruna­vörnum. Mynd: Heimildin / Golli

Einar Þor­steins­son, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík og for­maður borg­ar­ráðs, segir að slökkvi­liðið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ætlað að beita Reykja­vík­ur­borg dag­sektum væri hús­næði á vegum borg­ar­innar ekki gert upp. Sú staða hafi komið upp í júlí og með því að segja upp leigu­samn­ingi fá leigj­endur frest fram til 1. febr­úar á næsta ári til þess að yfir­gefa hús­næðið.

Mikill kostn­aður fylgir því að gera upp hús­næðin og úr varð að fimmtán leigu­samn­ingum í þremur fast­eignum borg­ar­innar, þar á meðal við lista­fólk úr gras­rót lista­lífs Reykja­víkur, var sagt upp. Þá vekur athygli að eitt hús­næð­anna var gert upp fyrir 150 millj­ónir fyrir fimm árum síðan. 

Til marks um alvarleika málsins

„Dag­sekt­irnar eru til marks um alvar­leika máls­ins, því það voru gerðar ítrek­aðar athuga­semdir og fyrri meiri­hluti brást ekki nægi­lega hratt og vel við þeim,“ segir Einar.

Lestin á RÚV fjall­aði um málið í þætti sínum og var birt á vef RÚV þar …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár