Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir

Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­mynd­arnir voru að mynda mót­mæli nú um helg­ina þegar þeir segja að lög­reglan hafi ráð­ist á sig.

Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Danska lög­reglan Lög­reglan í Kaup­manna­höfn hefur óskað eftir óháðri rann­sókn á ásök­unum tveggja frétta­ljós­mynd­ara um að lög­reglu­menn hafi slegið þá við störf. Mynd: AFP

Lög­reglan í Kaup­manna­höfn greindi frá því í dag að rann­sókn sé hafin vegna ásak­ana tveggja frétta­ljós­mynd­ara sem segj­ast hafa orðið fyrir árásum lög­reglu­manna við störf sín á mót­mælum gegn inn­flytj­endum nú um helg­ina.

Ljós­mynd­ari danska dag­blaðs­ins Ekstra Bladet segir lög­reglu­mann hafa slegið sig með kylfu þegar hann fylgd­ist með mót­mælum í dönsku höf­uð­borg­inni. Mót­mæl­endur kröfð­ust þess að inn­flytj­endur yrðu sendir aftur til upp­runa­landa sinna, en jafn­framt fóru fram gagn­mót­mæli.

Ljós­mynd­ari dag­blaðs­ins Politi­ken sakar lög­regl­una einnig um að hafa slegið sig með kylfu. Myndavél hans eyði­lagð­ist í átök­unum og flytja þurfti hann á sjúkra­hús.

„Fjöl­miðlar hafa greint frá tveimur til­teknum atvikum þar sem lög­reglu­menn eru sagðir hafa slegið fjöl­miðla­fólk,“ segir í yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar.

„Í ljósi þeirrar gagn­rýni sem fram hefur komið í kjöl­farið höfum við óskað eftir því að óháð eft­ir­lits­stofnun með störfum lög­reglu, DUP, rann­saki málin.“

Í leið­ara sem birt­ist á sunnu­dag sagði aðal­rit­stjóri …

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár