Mótmæli Eldur logar á Boulevard Hauss­mann í París meðan mót­mæli vegna hækk­andi fram­færslu­kostn­aðar standa yfir. Hundruð þús­unda tóku þátt í mót­mælum víða um Frakk­land. Mynd: GUILLAUME SALIGOT / AFP

Óeirðir, rán og eldar víða um Frakkland

Mótmælin vegna framfærslu­kostnaðar drógu að sér hundruð þúsunda manna, en enduðu í átökum, skemmdar­verkum og ránum í borgum víða um landið.

Frakkar vöknuðu í gærmorgun við eyði­leggingu á götum eftir átök lögreglu og mótmælenda, umfangs­mikil rán og eldsvoða víða um land. Mótmæla­göngur vegna hækkandi framfærslu­kostnaðar höfðu farið út í „gróft“ ofbeldi.

Óeirðirnar brutust út eftir margra vikna mótmæli námsmanna og eru aðeins sex mánuðir þar til kosið verður um eftirmann Emmanuel Macron forseta.

Heilu göturnar í París „eru í rúst“, sagði borgar­stjórinn Emmanuel Gregoire, eftir að hópar grímu­klæddra ungra manna kveiktu í kyrr­stæðum bílum og rændu verslanir.

Sebastien Lecornu, forsætis­ráðherra Frakk­lands, hafði fordæmt „gríðar­lega hörku“ ofbeldisins. Hann sagði 1.200 hafa verið handtekna og 150 lögreglu­menn slasast.

Það væri „krafta­verk að afleiðingarnar séu ekki verri“, sagði hann.

Fjöldi mótmælenda á reiki

Ofbeldið hófst í tengslum við mótmæla­göngur vegna framfærslu­kostnaðar í höfuð­borginni og öðrum borgum. Innan­ríkis­ráðuneytið sagði 550.000 manns hafa tekið þátt.

Verkalýðs­sambandið CGT, sem tók þátt í mótmælunum, sagði þátt­takendur hafa verið 800.000.

1.200
Sebastien Lecornu for­sæt­is­ráð­herra sagði 1.200 manns hafa verið hand­tekna í tengslum við óeirð­irnar. Hann sagði jafn­framt að 150 lög­reglu­menn hefðu slasast.

Lögregla beitti táragasi og vatns­byssum gegn mótmælendum sem köstuðu hlutum og beindu flugeldum að lögreglu.

Sautján ára drengur missti hægri höndina þegar hand­sprengja sem notuð er við að hemja mann­fjölda sprakk í borginni Saint-Etienne í suður­hluta landsins.

Tæmdu verslanir

Á meðan mótmælin stóðu yfir og eftir að þeim lauk fóru hópar ungmenna um götur borga, lentu öðru hvoru í átökum við lögreglu, kveiktu elda og brutust inn í lokaðar verslanir sem þeir tæmdu.

Fjöldi verslana var rændur í París, Marseille, Nice, Nantes, Bordeaux, Limoges, Lille, Toulouse og Strasbourg. Þar á meðal voru stór­markaðir, apótek, lúxusvöru­verslanir, fata­verslanir, gleraugna­verslanir, snyrti­vöru­verslanir og raftækja­verslanir.

Frétta­menn AFP í París sáu hópa um sex ungra manna ráðast skipulega á verslanir. Þeir báru grímur og hanska, aftengdu fyrst öryggis­myndavélar og brutu síðan rúður til að komast inn.

550.000
Inn­an­rík­is­ráðu­neytið sagði 550.000 manns hafa tekið þátt í mót­mælum vegna fram­færslu­kostn­aðar. Verka­lýðs­sam­bandið CGT taldi þátt­tak­endur fleiri, eða 800.000.

Ránin bættust við eyði­leggingu og skemmdar­verk dagsins, en ráðhús voru meðal þeirra bygginga sem ráðist var á í nokkrum borgum.

Ráðhúsið í Limoges, sem er meira en 140 ára gamalt, eyði­lagðist að mestu í eldi sem grímu­klæddir mótmælendur kveiktu eftir að hafa brotist inn, að sögn æðsta embættis­manns svæðisins. Einnig var brotist inn í ráðhús í Marseille og Lille og þau skemmd.

Lögreglustöð í Bordeaux varð einnig fyrir skemmdar­verkum og í Lyon kveiktu mótmælendur í skrif­stofu ferðamála.

Stjórnmálamenn bregðast við

Ofbeldið hefur vakið heims­athygli. Í Banda­ríkjunum kenndi JD Vance vara­forseti innflytjenda­málum um óeirðirnar.

„Frjáls­lyndir Vesturlanda­búar fluttu þriðja heiminn til Frakk­lands og annarra landa í nafni fjöl­breytileika og samkenndar. Þeir hunsuðu grundvallar­spurningar um aðlögun og samrýmanleika,“ sagði hann á X.

Macron forseti sagði að „þeir sem unnu skemmdar­verk, réðust á opinberar skrif­stofur eða fyrirtæki eða frömdu rán – jafnvel í ráðhúsunum okkar – verði sóttir til saka og þeim refsað“.

Stjórnar­andstæðingar sem sækjast eftir að taka við af Macron í forseta­kosningunum í apríl og maí hafa nýtt sér óreiðuna.

Marine Le Pen, fram­bjóðandi öfga­hægrimanna, fordæmdi „óeirða­seggina“ og hélt því fram að flokkur Jean-Luc Melenchon, keppinautar hennar um forseta­embættið á ysta vinstri vængnum, hefði „réttlætt ofbeldið“.

Á búfjár­sýn­inguMarine Le Pen tekur sjálfs­mynd með fólki á búfjár­sýn­ingu í Cournon-d’Auvergne fyrr í mán­uð­inum.
„Þeir sem unnu skemmd­ar­verk, réð­ust á opin­berar skrif­stofur eða fyr­ir­tæki eða frömdu rán – jafn­vel í ráð­hús­unum okkar – verði sóttir til saka og þeim refsað“
Emmanuel Macron
Forseti Frakk­lands.

Hún hét því að vernda Frakka „gegn ofbeldi öfga­vinstrisins“.

Melenchon, sem hafði stutt mótmælin og námsmanna­mótmælin sem fóru á undan þeim með áberandi hætti, hvatti mótmælendur til að taka ekki þátt í ránum og sagði þau „stríða gegn aðferðum okkar“.

Gulvestungahreyfingin í Frakk­landi, sem efndi til götu­mótmæla gegn ríkis­stjórn Macron fyrir átta árum vegna fyrir­hugaðra hækkana á eldsneytis­sköttum, hafði boðað til mótmæla „gulvestunga og ungmenna“ í gær.

Helsta umkvörtunar­efnið var framfærslu­kostnaður, sem hefur meðal annars hækkað vegna stríðsins í Mið-Austur­löndum. Það hefur átt þátt í því að verðbólga hefur aukist hratt í Evrópu og víðar.

„Við erum orðin þreytt á að þræla fyrir sultar­laun á meðan leigan hækkar stöðugt,“ sagði kennarinn Regine Monfroid við AFP í Strasbourg í austur­hluta landsins.

En fleira vakti óánægju.

Á reyk­fylltri götuReykur liggur yfir götu þar sem fólk er á ferli. Mótmæli vegna fram­færslu­kostn­aðar í Frakk­landi leiddu til átaka og skemmd­ar­verka.

Óánægja umfram framfærslukostnað

Í París gengu tugir þúsunda um austur- og norður­hluta borgarinnar í einni stórri mótmæla­göngu. Sumir hrópuðu „Allir hata lögregluna“ og „Macron, segðu af þér“.

Kamil Alahyan, 18 ára framhalds­skólanemi, sagðist mótmæla „af svo mörgum ástæðum – kosningunum sem fram undan eru árið 2027, stjórn­málamönnum sem ljúga og ofurríku fólki sem hefur sölsað undir sig sífellt meiri auð undan­farin tíu ár“.

„Við erum orðin þreytt á að þræla fyrir sult­ar­laun á meðan leigan hækkar stöðugt“
Regine Monfroid
Kennari í Strasbourg.

Nokkrir mótmælendur vísuðu til frönsku byltingarinnar árið 1789.

„Þetta er byltingin – við erum að taka Bastilluna!“ hrópuðu sumir í Marseille þegar þeir brutust inn á skrif­stofur borgar­stjórans.

Í borginni La Rochelle í vestur­hluta landsins gengu mótmælendur á eftir skilti sem á stóð: „Bylting eða dauði.“

Í borginni Montpellier í suður­hluta landsins var stóru bláu skilti með orðunum „Fólkið mun sigra“ komið fyrir yfir torgi í miðborginni.

„Ríkis­stjórnin skelfur, og það er rétt að hún geri það, því þegar franska þjóðin reiðist gefst hún aldrei upp,“ sagði Ryad Rani, leiðtogi samtaka framhalds­skólanema, LSU, við blaðamenn í París.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ADA
    Anna Dóra Antonsdóttir skrifaði
    Spurning hvort JD Vance veit um frönsku byltinguna 1789 og áfram og hvaða innflytjendur voru þá komnir til Frakklands?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár