Óánægja Frakka: Vandinn nær lengra en út á göturnar

Óeirðir og fjölda­mót­mæli í Frakk­landi hafa leitt í ljós vax­andi óánægju með efna­hags­á­standið, stjórn­völd og fram­tíð­ar­horfur almenn­ings. Staðan veldur Emmanuel Macron for­seta miklum vanda í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna á næsta ári og gæti styrkt stjórn­mála­öfl sem berj­ast gegn hinu hefð­bundna valda­kerfi.

Óánægja Frakka: Vandinn nær lengra en út á göturnar

„Bylting!“ hróp­uðu sumir þátt­tak­endur í mót­mæl­unum í Frakk­landi. Aðrir kröfð­ust betri aðbún­aðar í skólum. Margir vildu ein­fald­lega að heim­il­is­fjár­hag­ur­inn hætti að versna vegna hækk­andi elds­neytis- og mat­væla­verðs.

Sumir virt­ust hins vegar sækj­ast eftir átökum. Grímu­klædd ung­menni tók­ust á við lög­reglu og nýttu sér upp­lausn­ar­á­standið til að ræna dýrum íþrótta­skóm og sjón­varps­tækjum úr versl­unum í borgum lands­ins.

Óeirð­irnar hafa dregið fram djúp­stæðan póli­tískan og efna­hags­legan ágrein­ing í frönsku sam­fé­lagi í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna á næsta ári, að mati stjórn­mála­skýrenda. Þær styrkja stjórn­mála­öfl sem vilja breyta ríkj­andi valda­kerfi, á sama tíma og fjár­hags­þreng­ingar rík­is­ins tak­marka mögu­leika stjórn­valda til að bregð­ast við.

Þetta veldur Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seta veru­legum vanda. Upp­gangur hans í stjórn­málum varð meðal ann­ars mögu­legur vegna hruns hins hefð­bundna flokka­kerfis í Frakk­landi og á for­seta­tíð hans hefur sundr­ung á stjórn­mála­vett­vangi auk­ist enn frekar.

Stjórn­mála­skýrendur telja að bilið milli vænt­inga Frakka til rík­is­ins og þess sem rík­is­sjóður hefur …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Edda Erlendsdottir skrifaði
    Laure Beccuau saksóknari Parísarborgar segir að hún "geti alls ekki staðfest" að gerendur ofbeldsins í París um helgina séu öfgavinstrisinnaðir. Samkvæmt henni eru flestir þeirra sem eru í haldi lögreglu lítið þekktir í réttarkerfinu og án nokkurrar pólitískrar hvatar.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár