Eitt helsta einkenni nútímans er upplýsingaóreiða, og eitt helsta einkenni nútímamanneskjunnar er að vita allt best. Kannski höfum við alltaf verið þannig, mögulega er það hluti af því hvernig við erum gerð sem tegund. Ég veit svo sem að oft hefur verið hart tekist á um ýmis málefni í sögu mannkyns. En ástæða þess að ég tengi þetta tvennt – upplýsingaóreiðu og beturvitaskap – ósjálfrátt saman í huganum er þessi: Við höfum öll svo ótrúlega mikinn aðgang að upplýsingum. Við getum beinlínis troðfyllt okkur af þeim dag og nótt ef okkur sýnist svo. Við vitum ekkert endilega hvaðan þær koma og sjaldnast hvort þær séu sannar eða upp lognar, ágiskanir einhvers fólks úti í bæ eða vísvitandi bjögun staðreynda. En spendýraheilinn okkar flokkar þær sem upplýsingar og telur sig þar af leiðandi búa yfir vitneskju.
„Við vitum ekkert endilega hvaðan þær koma og sjaldnast hvort þær séu sannar eða upp lognar
Síðastliðin misseri hef ég talsvert velt fyrir mér gömlum gildum sem nú eru mjög komin úr tísku. Eitt þeirra er auðmýkt. Hún er í það minnsta nokkuð sem ég í sívaxandi mæli reyni að tileinka mér. Til dæmis með því að minna mig stöðugt á að ég er bara að þreifa mig áfram í frumskóginum líkt og aðrir og í raun sé frekar fátt sem ég veit fyrir víst. Og nú líður mér næstum lúðalega að vera að predika um auðmýkt. Sú tilfinning stafar líklega af því að ég er ekki ónæm fyrir tískustraumum frekar en aðrir. Eins getur verið að viðleitni mín til aukinnar auðmýktar hafi þessar afleiðingar: Sum sé að ég fari eilítið hjá mér yfir því að boða nokkurn skapaðan hlut. En stundum velti ég fyrir mér hvort við værum betur komin sem tegund og sem einstaklingar ef okkur tækist að viðhalda því besta úr gömlum tíma meðfram öllum nýjungunum.


















































Athugasemdir