Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar

Jón Gnarr ætlar að sitja áfram á Alþingi utan flokka en styðja rík­is­stjórn­ina. Þingmenn stjórn­ar­flokk­anna eru nú 34 en voru 36 í upp­hafi kjör­tíma­bils­ins. Tveir þing­menn utan flokka styðja þó áfram stjórn­ina.

Jón Gnarr yfirgefur þingflokk Viðreisnar
Hættur Jón Gnarr hefur sagt sig úr þing­flokki Við­reisnar en hyggst áfram styðja rík­is­stjórn­ina. Mynd: Golli

Jón Gnarr hefur sagt sig úr þing­flokki Við­reisnar og hyggst sitja áfram á Alþingi sem þing­maður utan flokka. Hann hefur jafn­framt lýst því yfir að hann muni áfram styðja rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar, Við­reisnar og Flokks fólks­ins.

„Ég hef reynt í líf­inu að standa fyrir máli mínu og horfa framan í fólk og þakka fyrir tæki­færið að fá að gera það hér,“ sagði Jón Gnarr í stuttu ávarpi við upp­haf þing­fundar í morgun. Þar sagði hann að ákvörð­unin um að segja sig úr flokknum hafi verið erfið og ekki létt­væg. 

Ákvörð­unin hafi verið tekin eftir „langa og vand­lega umhugsun“ og að eins og „stjórn­ar­skráin skildar mig til að gera fylgi ég sann­fær­ingu minni hér“. 

Með brott­hvarfi Jóns eru þing­menn stjórn­ar­flokk­anna orðnir 34, en voru 36 þegar kjör­tíma­bilið hófst í des­em­ber 2024. Rík­is­stjórnin nýtur þó áfram stuðn­ings 36 þing­manna, að með­töldum þeim tveimur sem hafa sagt sig úr stjórn­ar­flokk­unum.

…
Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár