Samskipti Hafnarfjarðarbæjar við lóðarhafa lítil síðustu 3 ár

Einn lóð­ar­hafa í Hafn­ar­firði þar sem reisa átti Tækni­skól­ann fékk til­boð sem hann féllst ekki á. Síðan voru sam­skipti lítil. Fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri fer undan í flæm­ingi.

Samskipti Hafnarfjarðarbæjar við lóðarhafa lítil síðustu 3 ár
Hafn­ar­fjörður Allt bendir til þess að Tækni­skól­inn sé að flytja úr Hafn­ar­firði eftir að það mistókst að finna honum nýjan stað þar í bæ. Mynd: Golli

Lóð­ar­eig­andi í Hafn­ar­firði, Haraldur Reynir Jónsson, stað­festir við Heim­ild­ina að hann hafi átt í litlum sam­skiptum við bæinn und­an­farin miss­eri í tengslum við lóð­ar­upp­kaup vegna Tækni­skól­ans. Hann hafi fengið til­boð árið 2023 sem honum þótti ekki ásætt­an­legt en síðan hafi bær­inn ekki komið með mót­til­boð. Hvorugur fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóra Hafn­ar­fjarðar hafa tjáð sig um mis­heppnuð lóða­upp­kaup í tengslum við Tækni­skól­ann.

Endaði á upphafsreit

Fyrr­nefndur Haraldur er oft kenndur við útgerð­ar­fé­lagið Sjóla og átti eina af þremur lóðum sem bær­inn vildi festa kaup á til þess að standa undir skuld­bind­ingum sínum vegna upp­bygg­ingar Tækni­skól­ans í Hafn­ar­firði. Fyrrum meiri­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar hunds­aði ítrek­aðar við­var­anir minni­hlut­ans sem var­aði marg­sinnis við hæga­gangi við að tryggja lóð­irnar. Svo fór að Hafn­ar­fjörður missti verk­efnið úr höndum sér fimm árum eftir að það hófst.

Fyrr­ver­andi odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar, Guð­mundur Árni Stef­áns­son, sem marg­bók­aði við­var­anir tengdar mál­inu í bæj­ar­stjórn síð­ustu fimm árin, sagði í við­tali við …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Tækniskólamálið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár