Berast ásakanir frá Bandaríkjunum en segjast ekki fá viðvaranir

Volody­myr Zelensky segir að Úkraína hafi ekki fengið við­vörun áður en Rússar skutu 16 skot­flaugum á Kænu­garðs­hérað. Marco Rubio hafnar því að upp­lýs­inga­miðlun hafi verið stöðvuð.

Berast ásakanir frá Bandaríkjunum en segjast ekki fá viðvaranir
Sakaður um að vilja stríð Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, segir Volody­myr Zelensky Úkra­ínu­for­seta að „ein­beita sér“ að því að ljúka stríð­inu. Mynd: NICOLAS TUCAT / AFP

Úkraína fékk enga við­vörun frá banda­mönnum um yfir­vof­andi árásir Rússa með skot­flaugum á orku­mann­virki í Kænu­garðs­hér­aði, sagði Volodimír Selenskí for­seti í dag.

Rússar skutu 16 skot­flaugum á Kænu­garðs­hérað og sendu meira en 200 dróna víðs vegar um stríðs­hrjáð landið, sagði Selenskí. Frétta­menn AFP heyrðu loft­varn­arflautur og spreng­ingar í höf­uð­borg­inni.

„Rússar gerðu aðra árás með skot­flaugum í nokkrum lotum í nótt og enn og aftur fengum við enga við­vörun frá sam­starfs­ríkjum okkar,“ sagði Selenskí á sam­fé­lags­miðlum.

Í síð­ustu viku sögðu úkra­ínsk stjórn­völd að Banda­ríkin hefðu ekki varað þau við sam­bæri­legum árásum. Íbúar hefðu því nán­ast engan tíma haft til að leita skjóls.

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, neit­aði því fyrr í dag að nokk­urt hlé hefði verið gert á miðlun leyni­upp­lýs­inga til Úkraínu.

„Það hefur ekk­ert hlé verið gert,“ sagði Rubio við frétta­menn í Úsbekistan þegar hann var spurður um full­yrð­ingar Úkra­ínu­manna. Hann hvatti Zelensky til …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár