Trump og Musk vilja nýjan Úkraínuforseta

„Það er kominn tími til að Zelensky fari frá,“ skrifaði Elon Musk á X, á sama tíma og Úkraínu­menn segja Banda­ríkin hjálpa Rússlandi í stríðinu.

Verðlaun
Verðlaun Elon Musk, eig­andi SpaceX og sam­fé­lags­mið­ils­ins X, þiggur vís­inda­verð­laun úr hendi Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta á ráð­stefn­unni „Gullöld banda­rískrar nýsköp­unar“ 8. októ­ber. Mynd: KENT NISHIMURA / AFP

Tækni­milljarðamæringurinn Elon Musk hvetur Volodimír Zelensky, forseta Úkraínu, til að láta af embætti. Ummælin falla á sama tíma og úkraínsk stjórn­völd lýsa efasemdum um stuðning Banda­ríkjanna í stríðinu gegn Rússum. Þau saka bandarísk stjórn­völd um að ganga erinda Rússa með því að láta hjá líða að vara við yfir­vofandi eldflauga­árásum og draga úr hernaðar­getu Úkraínu með breytingum á fjarskipta­kerfi sem SpaceX hefur þróað.

„Og þannig heldur blóðbaðið áfram,“ skrifar Musk á samfélags­miðilinn X. „Það er kominn tími til að Zelensky fari frá.“

Musk hefur áður sagt að „allar takmarkanir á hraða eða notkun“ Starshield-kerfis fyrir­tækis hans, SpaceX, væru „ákveðnar af bandaríska hernum og að lokum forseta Banda­ríkjanna“. Þar á hann við Donald Trump Bandaríkja­forseta.

„Það er kom­inn tími til að Zelensky fari frá“

Musk gerði greinarmun á Starshield, sem úkraínski herinn reiðir sig á til fjar­skipta á vígvellinum, og Starlink, …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Sem sagt: ekki árásaraðilinn er ábyrgur heldur fórnarlambið sem ver sig. Undarleg heimspeki.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár