Syst­urnar Sehar og Bassana vildu ekki láta mynda and­lit sín af ótta við við­brögð afganska sam­fé­lags­ins yfir því að þær skildu segja sögu sína í fjöl­miðlum. Mynd: Golli

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.

Syst­urnar Bassana og Sehar Kohi koma frá landi þar sem konum og stúlkum yfir 12 ára aldri er bannað að ganga í grunn-, fram­halds- og háskóla. Þær höfðu áður haft rétt til mennt­unar, áður en talí­banar tóku völdin í landi þeirra, Afganistan, árið 2021. Sá réttur var hrifs­aður af þeim í kjöl­farið. Þær flúðu heima­landið og komu hingað til Íslands þar sem bróðir þeirra bjó þegar.

Á Íslandi töldu þær að þær gætu menntað sig, Sehar farið í fram­halds­skóla og Bassana í háskóla. En nú, tæpum tveimur árum síðar, hefur sá draumur enn ekki ræst. Þær hafa þó reynt að sækja sér menntun en vegna bæði tungu­mála­örð­ug­leika og ald­urs hefur það reynst þraut­inni þyngri að kom­ast inn í fram­halds­skóla og háskóla­nám.

Þær eru ekki einar heldur segj­ast þekkja í það minnsta tíu aðrar afganskar konur í sömu stöðu. Konur sem eru fastar í lág­launa­störfum þar sem þær fá …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Hvða vitleysa er það að hún sé of gömul til að fara í framhaldsskóla.. getur fólk sem dettur út úr framhaldskóla haldið áfram.. ég veit nú um nokkra sem hafa gert það..
    3
  • Ragnhildur L Guðmundsdóttir skrifaði
    Það er í boði að sækja framhaldsskóla þar sem kennsla fer fram á ensku t.d í MH ... geta svo tekið þátt í félagslífi til þess að geta talað og æft sig í íslensku. Afhverju fá þær ekki sömu tækifæri hjá vinnumálastofnun eins og karlar sem fara í nám til leigubílaaksturs með styrk frá VMST ?
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.
Jón Gunnars og Áslaug Arna hringdu í ríkislögreglustjóra vegna Yazans
FréttirFlóttamenn

Jón Gunnars og Áslaug Arna hringdu í rík­is­lög­reglu­stjóra vegna Yazans

Gögn sem Heim­ildin fékk afhent frá dóms­mála­ráðu­neyt­inu varpa ljósi á það að fleiri stjórn­mála­menn en Guð­mundur Ingi Guð­brands­son félags­mála­ráð­herra tóku upp tólið og hringdu í rík­is­lög­reglu­stjóra áður en ákveðið var að fresta brott­vísun Yazans Tamimi og fjöl­skyldu. Tveir fyrr­ver­andi dóms­mála­ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks­ins hringdu í Sigríði Björk Guð­jóns­dóttur rík­is­lög­reglu­stjóra og ræddu málið.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár