{# Breyta í Snata: for whoever may edit this page there (an article: news.views.snati_edit_url; an outlet's front: home.views.snati_front_url). The page is made for each request of staff (utils/pagecache.py keeps none with a session), so it is nobody else's. snati_edit_title: what it opens. #}

Starfsleyfi sex lækna felld niður eftir umfjöllun

Embætti land­læknis tók mál 13 lækna til skoð­unar í kjöl­far rann­sóknar Heim­ild­ar­innar og erlendra miðla á læknum sem héldu starfs­leyfi í einu landi eftir að hafa misst það í öðru. Sex starfs­leyfi hafa verið felld niður og eitt tak­markað.

Embætti land­læknis hefur fellt niður starfs­leyfi sex lækna og tak­markað leyfi þess sjö­unda eftir að hafa tekið til skoð­unar mál 13 lækna sem Heim­ildin spurði emb­ættið um í kjöl­far alþjóð­legrar rann­sóknar á læknum sem höfðu misst starfs­leyfi í einu landi en héldu því í öðru.

Í sjö af mál­unum 13 var talið rétt að aðhaf­ast. Sex starfs­leyfi voru felld niður og eitt tak­markað, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem emb­ættið hefur nú afhent. Í sept­em­ber á síð­asta ári fjall­aði Heim­ildin um að læknar sem höfðu misst lækn­inga­leyfi erlendis hefðu getað fengið eða haldið starfs­leyfi hér á landi.

Land­læknirMaría Heim­is­dóttir er land­læknir. Embætti hennar tók mál lækn­anna til skoð­unar.

Rann­sóknin, sem leidd var af OCCRP, The Times í Bret­landi, VG í Noregi og Heim­ildin tók þátt í ásamt fjölda ann­arra fjöl­miðla, leiddi í ljós minnst sex stað­fest dæmi um lækna …

Kjósa
38
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár