Tekjur Kjöríss jukust um 17 prósent samhliða verðhækkunum

Kjörís skil­aði 96,5 millj­óna króna hagn­aði í fyrra eftir mik­inn við­snún­ing. Á sama tíma sýndu verð­mæl­ingar ASÍ miklar verð­hækk­anir á vörum fyr­ir­tæk­is­ins. Sölu- og mark­aðs­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir við­snún­ing­inn skýr­ast af breyttu vöru­fram­boði, nýjum vörum, auk­inni sölu og verð­leið­rétt­ingum.

Tekjur Kjöríss jukust um 17 prósent samhliða verðhækkunum
Veðurfar Bæði Kjörís og Emmessís vísa til veð­ur­fars í árs­reikn­ingum sínum, sem ástæða góðs gengis á síð­asta ári. Mynd: Golli

Veru­legur við­snún­ingur varð á rekstri Kjöríss í fyrra. Fjöl­skyldu­fyr­ir­tækið í Hvera­gerði skil­aði 96,5 millj­óna króna hagn­aði, sam­an­borið við 10,7 millj­ónir árið áður. Hagn­að­ur­inn nífald­að­ist því á einu ári. Tekjur juk­ust úr tæpum 1,53 millj­örðum króna í 1,79 millj­arða, eða um 17 pró­sent, en rekstr­ar­hagn­aður jókst enn meira, úr 62 millj­ónum í rúmar 160 millj­ónir.

Félagið er í jafnri eigu fjög­urra systk­ina. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fjórð­ung í fyr­ir­tæk­inu, rétt eins og systk­ini hennar, Aldís Haf­steins­dóttir, Sig­ur­björg Haf­steins­dóttir og Valdimar Haf­steins­son. 

Stjórn Kjöríss, sem er skipuð systk­inum Guðrúnar, leggur til að allt að 40 millj­ónir króna verði greiddar hlut­höfum í arð vegna síð­asta árs. Verði til­lagan sam­þykkt kæmu tíu millj­ónir króna í hlut hvers systk­inis. Guðrún situr ekki í stjórn Kjöríss og er ekki fram­kvæmda­stjóri félags­ins. Hún starf­aði hins vegar hjá fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu um ára­bil áður en hún hóf þing­mennsku.

Nýjar vörur skýra stóran hluta aukningarinnar

Kjörís …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár