Gefa börnum sínum Samherja

Aðal­eig­endur Samherja hafa fram­selt hluta­bréf sín í fyr­ir­tæk­inu til barna sinna. Börn þeirra Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Krist­jáns Vil­helms­sonar halda nú á 84,5 pró­senta hlut í Samherja. Sam­herj­a­mál­inu svo­nefnda er enn ólokið.

Gefa börnum sínum Samherja
Eft­ir­láta inn­lendan hluta Samherja til barna sinna Börn þeirra frænda, Þor­steins Más og Krist­jáns, hafa tekið við meiri­hluta­eign í Samherja hf. Mynd: Skapti Hall­gríms­son

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, og fyrr­ver­andi eig­in­kona hans, Helga Steinunn Guð­munds­dóttir, hafa afsalað sér hluta­bréfa­eign sinni í Samherja hf. til barna sinna, Baldvins og Kötlu Þor­steins­barna. Hið sama hafa þau Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, og eig­in­kona hans, Kolbrún Ing­ólfs­dóttir, gert en börn þeirra, Dagný Linda, Halldór Örn, Kristján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn hafa tekið við hlut for­eldra sinna. Enn er ólokið rann­sókn á mútu­greiðslum dótt­ur­fé­lags Samherja í Namibíu og aðkomu þeirra Þor­steins og Krist­jáns þar að.

Þau Þor­steinn Már, Helga Steinunn og hjónin Kristján og Kolbrún voru fyrir aðal­eig­endur Samherja hf. og héldu á 86,5 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Eftir breyt­ingar halda þau sam­an­lagt á tveggja pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu. Þau Baldvin og Katla fara nú sam­an­lagt með 43 pró­senta hlut í fyr­ir­tæk­inu og þau Dagný, Halldór, Kristján og Katrín Krist­jáns­börn fara með 41,5 pró­sent hlut.

Í til­kynn­ingu á vef Samherja kemur fram að unnið hafi verið að þessum breyt­ingum und­an­farin tvö ár, og með þeim vilji stofn­endur Samherja „treysta og við­halda þeim  mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­inum.“ Eftir sem áður munu þeir Þor­steinn og Kristján gegna störfum sínum hjá Samherja.

Í til­kynn­ing­unni segir enn fremur að þeir frændur, Þor­steinn og Kristján, hafi fullan hug á að halda áfram þátt­töku sinni í rekstri Samherja. „Nú fáum við nýja kyn­slóð til liðs við okkur. Við fáum tæki­færi til að halda áfram að skapa verð­mæti með full­nýt­ingu hrá­efnis, veita vinnu og starfs­ör­yggi og tryggja enn frekar þau mik­il­vægu gildi um sjálf­bærni og vand­aða umgengni um auð­lind­ina sem verið hefur stefna Samherja frá upp­hafi.“

Samherji hf. fer í meg­in­at­riðum með inn­lenda starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins en erlend starf­semi heyrir undir Samherja Holding ehf. Undir Samherja Holding heyrir fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, áður Polar Seafood. Sæból á síðan dótt­ur­fé­lögin Esju Seafood Ltd. og Esju Shipping Ltd. sem héldu utan um hesta­makríl­veiðar Samherja í Namibíu.

Stundin greindi frá því í nóv­em­ber á síð­asta ári að félög í eigu Samherja hefðu frá árinu 2012 greitt mörg hund­ruð millj­ónir króna í mútur til að trygga fyr­ir­tæk­inu hesta­makríl­kvóta í Namibíu. Samherji nýtti sér þá skatta­skjól á Marshall-eyjum og á Máritíus í við­skiptum sínum og átti einnig í miklum við­skiptum á lág­skatta­svæð­inu Kýpur. Norski bank­inn DNB lok­aði þá á við­skipti félaga Samherja sökum gruns um að þau væru notuð til að stunda pen­inga­þvætti.

Sam­herj­a­málið er enn til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og greindi for­stjóri þess, Ólafur Þór Hauksson, frá því í sam­tali við Stundina í lok apríl að með­ferð máls­ins myndi tefj­ast vegna Covid-19 far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár