Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“

Alþjóð­leg skýrsla segir að stefna stjórn­valda dugi ekki til að vernda 30 pró­sent lands og haf­svæða fyrir árið 2030. Ríki ræða stöð­una á COP17 í Armeníu í næstu viku.

Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
António Guterres Fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna segir ríki heims ekki gera nóg til að ná mark­miðum um vernd líf­fræði­legrar fjöl­breytni. Mynd: MICHAEL TEWELDE / AFP

António Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, sagði í dag að „stríð­inu gegn nátt­úr­unni sé ekki enn lokið“ þegar hann kynnti skýrslu sem sýnir að ríki heims standi ekki við skuld­bind­ingar sínar um líf­fræði­lega fjöl­breytni.

Ríki heims munu fara yfir árangur og hindr­anir á leið að mark­mið­inu um að stöðva eyð­ingu nátt­úr­unnar fyrir árið 2030 þegar þau koma saman í Armeníu í næstu viku til við­ræðna Sam­ein­uðu þjóð­anna um líf­fræði­lega fjöl­breytni.

Fyrir fjórum árum gerð­ust nærri 200 ríki aðilar að hinu tíma­móta­sam­komu­lagi sem kallað hefur verið „Par­ís­ar­sam­komu­lagið um nátt­úr­una“, en hægt hefur gengið að hrinda mark­miðum þess í fram­kvæmd.

Í sam­komu­lag­inu eru 23 mark­mið um að stöðva hnignun nátt­úr­unnar og snúa henni við fyrir árið 2030. Þar á meðal eru mark­mið um að draga úr mengun, vernda teg­undir í hættu og vernda 30 pró­sent lands og haf­svæða heims­ins.

En mörg þess­ara mark­miða eru ekki á réttri leið, …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár