Stjórnvöld taka yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands

Lögregla stöðv­aði útsend­ingar Halk TV og stjórn­andi skip­aður af stjórn­völdum tók við rekstr­inum. Sak­sókn­arar rann­saka stjórn­ar­for­mann stöðv­ar­innar vegna gruns um mútur, útboðs­svik og pen­inga­þvætti. Hann segir ásak­an­irnar til­hæfu­lausar og sakar stjórn­völd um að beita dóms­kerf­inu í póli­tískum til­gangi.

Stjórnvöld taka yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
Óánægður Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seti og rík­is­stjórn hans hafa beitt sér gegn fjöl­miðlum sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd. Mynd: ADEM ALTAN / AFP

Lögregla réðst inn í höf­uð­stöðvar Halk TV, vin­sæl­ustu frétta­stöðvar Tyrk­lands, snemma í morgun. Útsend­ingar stöðv­ar­innar voru stöðv­aðar og stjórn­völd skip­uðu sér­stakan umsjón­ar­mann yfir rekstri hennar. Aðgerðin er sú nýjasta í röð aðgerða gegn fjöl­miðlum sem styðja stjórn­ar­and­stöð­una.

Cafer Mahiroglu, stjórn­ar­for­maður Halk TV, for­dæmdi aðgerð­ina gegn höf­uð­stöðvum stöðv­ar­innar í Istanbúl og sagði þetta „svartan dag fyrir Tyrkland“. Gagnrýni barst einnig frá stjórn­ar­and­stöð­unni og mann­rétt­inda­sam­tökum.

„Lögregla ræðst inn í höf­uð­stöðvar Halk TV! Umsjón­ar­maður hefur verið skip­aður, útsend­ingar stöðv­aðar,“ skrif­aði stöðin á X þegar slökkt var á beinni frétta­út­send­ingu hennar og útsend­ingum á YouTube.

Þetta er nýjasta aðgerðin gegn fjöl­miðlum sem þykja gagn­rýnir á Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seta og rík­is­stjórn hans. Tvær vikur eru síðan yfir­völd lok­uðu vef og sam­fé­lags­miðla­reikn­ingum T24, eins helsta staf­ræna frétta­mið­ils lands­ins, með vísan til „hinsegin áróð­urs“.

Sak­sókn­arar sögð­ust hafa gefið út hand­töku­skip­anir á hendur 17 manns, þar af hefðu ell­efu verið hand­teknir. Aðgerðin …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er hvergi til lýðræði eingöngu misvont einræði, fasismi. Tildæmis hérna heima kaupa þeir sem hafa sölsað undir sig auðlindirnar (duglega fólkið) fjölmiðlana og keyra svo endalausar lygar í þeim sem heilaþvo lýðinn smám saman. Þetta tókst ágætlega í síðustu þjóðarkostningu. Ekkert brot á reglum né lögum, bara djöfuldómur af röngum upplýsingum, þetta trix þekkja allir sem eru aðeins meira en tvævetur. Eiræðisherrarnir leyfa sér aðeins grófari aðferðir eins og greinarstúfurinn fjallar um.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár