Stjórnvöld taka yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands

Lögregla stöðvaði útsendingar Halk TV og stjórn­andi skipaður af stjórn­völdum tók við rekstrinum. Saksókn­arar rannsaka stjórnar­formann stöðvarinnar vegna gruns um mútur, útboðs­svik og peninga­þvætti. Hann segir ásakanirnar tilhæfu­lausar og sakar stjórn­völd um að beita dóms­kerfinu í pólitískum tilgangi.

Óánægður
Óánægður Recep Tayyip Erdogan Tyrk­lands­for­seti og rík­is­stjórn hans hafa beitt sér gegn fjöl­miðlum sem eru gagn­rýnir á stjórn­völd. Mynd: ADEM ALTAN / AFP

Lögregla réðst inn í höfuð­stöðvar Halk TV, vinsælustu frétta­stöðvar Tyrklands, snemma í morgun. Útsendingar stöðvarinnar voru stöðvaðar og stjórn­völd skipuðu sérstakan umsjónar­mann yfir rekstri hennar. Aðgerðin er sú nýjasta í röð aðgerða gegn fjöl­miðlum sem styðja stjórnar­andstöðuna.

Cafer Mahiroglu, stjórnar­formaður Halk TV, fordæmdi aðgerðina gegn höfuð­stöðvum stöðvarinnar í Istanbúl og sagði þetta „svartan dag fyrir Tyrkland“. Gagnrýni barst einnig frá stjórnar­andstöðunni og mann­réttinda­samtökum.

„Lögregla ræðst inn í höfuð­stöðvar Halk TV! Umsjónar­maður hefur verið skipaður, útsendingar stöðvaðar,“ skrifaði stöðin á X þegar slökkt var á beinni frétta­útsendingu hennar og útsendingum á YouTube.

Þetta er nýjasta aðgerðin gegn fjöl­miðlum sem þykja gagnrýnir á Recep Tayyip Erdogan Tyrklands­forseta og ríkis­stjórn hans. Tvær vikur eru síðan yfirvöld lokuðu vef og samfélags­miðla­reikningum T24, eins helsta stafræna frétta­miðils landsins, með vísan til „hinsegin áróðurs“.

Saksókn­arar sögðust hafa gefið út handtöku­skipanir á hendur 17 manns, þar af hefðu ellefu verið hand­teknir. Aðgerðin …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Það er hvergi til lýðræði eingöngu misvont einræði, fasismi. Tildæmis hérna heima kaupa þeir sem hafa sölsað undir sig auðlindirnar (duglega fólkið) fjölmiðlana og keyra svo endalausar lygar í þeim sem heilaþvo lýðinn smám saman. Þetta tókst ágætlega í síðustu þjóðarkostningu. Ekkert brot á reglum né lögum, bara djöfuldómur af röngum upplýsingum, þetta trix þekkja allir sem eru aðeins meira en tvævetur. Eiræðisherrarnir leyfa sér aðeins grófari aðferðir eins og greinarstúfurinn fjallar um.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár