Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur

Jón Gnarr heldur áfram í flokknum þó hann segi skilið við þing­flokk­inn. Formaður Við­reisnar segir að honum sé fjálst að snúa aftur hvenær sem er.

Þorgerður Katrín: Jón alltaf velkomin aftur
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Formaður Við­reisnar seg­ist þykja vænt um Jón og að hann sé ávallt vel­komin aftur í þing­flokk­inn. Mynd: Golli

Jón Gnarr heldur áfram í Viðreisn þó að hann hafi til­kynnt úrsögn úr þing­flokknum sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar. Samkvæmt þeim sem Heim­ildin ræddi við var vitað að Jón væri að íhuga þennan mögu­leika í nokkra daga en svo virð­ist sem raun­veru­legar ástæður úrsagnar úr þing­flokki séu óljósar. 

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir for­maður Við­reisnar áréttar á Facebook síðu sinni að henni þyki vænt um Jón og það breyt­ist ekki þó að hann segi sig úr þing­flokknum.

Svo skrifar hún: „Ég hefði auð­vitað kosið að hafa Jón áfram í þing­flokknum. En ég virði ákvörðun hans og mér þykir vænt um að hann ætli áfram að styðja rík­is­stjórn­ina og þau verk­efni sem við höfum tekið okkur fyrir hendur. Mér þykir líka vænt um að hann haldi áfram í Viðreisn og hann er að sjálf­sögðu alltaf vel­kom­inn aftur í …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Þorgerður Katrín er stjórnmálamaður sem allir aðrir á þeim vettvangi mættu taka sér til fyrirmyndar. Hún sýnir að hafa góðan skilning á sjónarmiðum annarra en víða þarf að bæta og lagfæra í samfélaginu. Alltaf er spurning hvað skuli vera í forgangi.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár