Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
Vék sæti Í til­kynn­ingu Síld­ar­vinnsl­unnar er tekið fram að Þor­steinn Már Bald­vins­son, stjórn­ar­for­maður félags­ins, hafi vikið sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni sem hann stýrir sem for­stjóri auk þess sem hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tækjum erlendis sem Þor­steinn Már á sjálfur í gegnum eign­ar­halds­fé­lag. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Almenn­ings­hluta­fé­lagið Síld­ar­vinnslan, sem Samherji er stærsti hlut­haf­inn í með nærri þriðj­ungs­hlut, hefur keypt helm­ing hluta­fjár í sölu­fé­lagi Samherja, Ice Fresh Seafood. Íslenskir líf­eyr­is­sjóðir eru stórir hlut­hafar í Síld­ar­vinnsl­unni á móti Samherja. Þetta kemur fram í kaup­hall­ar­til­kynn­ingu frá Síld­ar­vinnsl­unni. 

Í við­skipt­unum kaupir Síld­ar­vinnslan hluta­bréf af Samherja fyrir 10,7 millj­ónir evra, eða rúm­lega 1500 millj­ónir íslenskra króna, auk þess sem nýtt hlutafé er gefið út fyrir 21,5 millj­ónir evra, tæp­lega 3,2 millj­arða íslenskra króna. Fjár­fest­ing Síld­ar­vinnsl­unnar er því upp á 4,7 millj­arða króna. 

„Með vísan til ákvæða laga og starfs­reglna stjórnar þá vék Þor­steinn Már sæti innan stjórnar Síld­ar­vinnsl­unnar hf. við með­ferð máls­ins og kom ekki að ákvörð­un­ar­töku vegna þess.“

Kaupir sölufyrirtæki beint af félagi Þorsteins og Kristjáns

Samhliða þessu kaupir Síld­ar­vinnslan hluta­bréf í erlendum sölu­fé­lögum sem bera nafnið Ice Fresh beint af fyr­ir­tæki í eigu stofn­enda Samherja, þeirra Þor­steins Más Bald­vins­sonar og …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Þegar dómar falla loksins í Samherja/Namibíu-svindli Þorsteins Má Baldvinssonar forstjóra Samherja verður (líklega) búið að sölu-RÆNA eignum Samherja-holding og eftir stendur tóm skel, sem ekkert verður hægt að sækja til, innan fárra mánaða verður starfsemi Samherja-holding lögð niður eða gerð gjaldþrota, um það snýst þessi vafningur og ekkert annað. Einmitt þess vegna var svo mikilvægt að frysta bankareikninga/eignasölu Samherja-holding og Samherja-ísland, hverjir ætla að axla þá ábyrgð ?
    1
  • HB
    Hrafn Baldursson skrifaði
    minn draumur, ilmandi ostar
    og sulta í stórri krús
    en söludeild samherja kosrar
    sirk'a einsog betrunarhús
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.
Skattrannsókn á Samherja snýst um hundruð milljóna króna
FréttirSamherjaskjölin í 1001 nótt

Skatt­rann­sókn á Samherja snýst um hund­ruð millj­óna króna

Skatt­rann­sókn, sem hófst í kjöl­far upp­ljóstrana um starfs­hætti Samherja í Namibíu, hefur staðið frá árs­lokum 2019. Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar telja skatta­yf­ir­völd að fyr­ir­tækið hafi komið sér undan því að greiða skatta í stórum stíl; svo nemur hund­ruðum millj­óna króna. Skúffu­fé­lag á Máritíus sem stofnað var fyrir milli­göngu íslensks lög­manns og félag á Marshall-eyjum, sem for­stjóri Samherja þvertók fyrir að til­heyrði Samherja, eru í skot­línu skatts­ins.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
6
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár