Þorsteinn Már Baldvinsson, er forstjóri bæði Samherja hf. og Samherja Holding.
Þor­steinn Már Bald­vins­son, er for­stjóri bæði Samherja hf. og Samherja Holding. Mynd: Skjáskot/Samherji

Samherji Holding segist ekki líða mútugreiðslur, fyrirgreiðslur og ávinning í skiptum fyrir óeðlileg áhrif

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Samherja Holding kemur fram að sam­stæðan telji mik­il­vægt að unnið sé að heil­indum og að hún líði ekki spill­ingu af neinu tagi. Samherji Holding og starfs­menn sam­stæð­unnar eru til rann­sóknar á Íslandi og í Namibíu.

„Hjá Samherja Holding er mik­il­vægt að unnið sé af heil­indum og við líðum ekki spill­ingu af neinu tagi.“ Þetta kemur fram í nýbirtum árs­reikn­ingi Samherja Holding, félags sem heldur meðal ann­ars utan um erlenda starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Umrædd yfir­lýs­ing er sett fram í svo­kall­aðri ófjár­hags­legri upp­lýs­inga­gjöf sem er óend­ur­skoðuð og birt­ist í lok reikn­ings­ins. Hún var ekki til staðar í árs­reikn­ingi Samherja Holding í fyrra.

Þar segir að undir spill­inum falli „mútu­greiðslur, fyr­ir­greiðslur og ávinn­ingur af sér­hverju tagi í skiptum fyrir óeðli­leg áhrif á ákvarð­ana­töku. Þá er pen­inga­þvætti ekki liðið af neinu tagi og er Samherji Holding stað­ráðið í að fara eftir gild­andi lögum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og munum grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir og koma auga á ólög­mætar greiðslur.“

Sam­herji Holding er að upp­­­i­­­­­stöðu í eigu for­stjóra Sam­herja, Þor­­­­steins Más Bald­vins­­son­­ar, Helgu S. Guð­­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­­konu hans og Krist­jáns Vil­helms­­­­son­­­­ar, útgerð­­­ar­­­stjóra Sam­herj­­­a­­­sam­­­stæð­unn­­­ar. Hinn hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, Samherji hf. sem heldur utan um inn­lenda sjáv­ar­út­vegs­starf­semi og fjár­fest­inga­starf­semi, er nú að mestu í eigu barna eftir að sam­stæðan var brotin upp í tvennt og meg­in­þorri eign­ar­hluta í Samherja hf. færðir til þeirra.

Saman áttu þessi tvö félög, Samherji hf. og Samherji Holding, eigið fé upp á um 160 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Þor­steinn Már er for­stjóri bæði Samherja hf. og Samherja Holding.

Í rannsókn í Namibíu og á Íslandi

Helstu eignir Sam­herja Holding eru fyr­ir­tæki á sviði veiða, vinnslu og sölu sjáv­ar­af­urða í Evr­ópu og Norð­ur­-Am­er­íku. Þá hefur Sam­herji Holding einnig fjár­fest í flutn­inga­starf­semi og er stærsti hlut­haf­inn í Eim­skip með 32,79 pró­sent eign­ar­hlut. Auk þess hélt Samherji Holding utan um alla starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar í Namibíu, en sam­stæðan og lyk­il­­starfs­­fólk innan hennar hafa verið til rann­­sóknar hjá emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara og skatt­rann­­sókn­­ar­­stjóra á Íslandi frá lokum árs 2019. Auk þess er málið í rann­sókn og ákæru­með­ferð í Namib­íu. Átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­­­­ar­­­­stöðu sak­­­­born­ings við yfir­­­­heyrslur hjá emb­ætt­i hér­aðs­sak­sókn­ara vegna máls­ins. Þeirra á meðal er Þor­steinn Már.

Hér­lendis hófst rann­sókn eftir að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu að grunur væri á að Sam­herji hefði greitt mút­­­ur, meðal ann­­ars til hátt­­settra stjórn­­­mála­­manna, til að kom­­ast yfir fisk­veið­i­­kvóta í Namibíu og Angóla. Á sama tíma voru birtar upp­­lýs­ingar sem bentu til þess að Sam­herji væri mög­u­­lega að stunda stór­­fellda skatta­snið­­göngu og pen­inga­þvætt­i.

Í umfjöllun Stund­­ar­innar um rann­sókn­ina fyrr í þessum mán­uði var haft eftir Ólafi Þór Hauks­syni hér­aðs­sak­sókn­ara að rann­­sóknin á Íslandi væri langt kom­in.

Krafa á dótturfélagið utan um namibísku starfsemina færð niður

Kjarninn greindi frá því í síð­ustu viku að end­ur­skoð­endur Sam­herja Holding hafi und­ir­ritað árs­reikn­ing félags­ins 2021 án fyr­ir­vara. Í árs­reikn­ingi Sam­herja Holding vegna árs­ins 2020 var fyr­ir­vari gerður við árs­­reikn­ing­inn vegna óvissu „um mála­­rekstur vegna fjár­­hags­­legra upp­gjöra sem tengj­­ast rekstr­inum í Namib­­íu.“ Sá fyr­ir­vari var gerður bæði af stjórn Sam­herja Holding og end­­ur­­skoð­anda félags­­ins.

Í nýja reikn­ingnum kemur fram að dótt­ur­fé­lagið Hermono Invest­ments ltd., hafi haldið utan um starf­semi sam­stæð­unnar í Namibíu. Í árs­lok 2019 var tekin ákvörðun um að leggja niður starf­semi Hermono Invest­ments og dótt­ur­fé­laga þess, selja eignir og gera upp skuldir. Starf­semi Hermono sam­stæð­unnar er því flokkuð sem aflögð starf­semi í efna­hags- og rekstr­ar­reikn­ingi sam­stæð­unnar.

Hluti af eignum aflagðrar starf­semi var skipið Heinaste, en skipið var selt í nóv­em­ber 2020 til þriðja aðila fyrir 18 millj­ónir Banda­ríkja­dala (2.682 millj­ónir króna á núvirði). Hluti sölu­verðs­ins, um sex millj­ónir Banda­ríkja­dala (894 millj­ónir króna á núvirði), er ógreiddur en til greiðslu á árunum 2022-2023.

Í árs­reikn­ingi fyrir 2021 segir að „sá hluti sem hefur verið greiddur, sam­kvæmt sér­stöku sam­komu­lagi við namibísk stjórn­völd, er geymdur á sam­eig­in­legum reikn­ingi með rík­is­sjóði Namibíu, þar til nið­ur­stöður dóms­máls í Namibíu liggja fyrir. Það er því óljóst hvenær and­virði söl­unnar verður til­tækt til notk­unar fyrir sam­stæð­una og vegna þeirrar óvissu er krafan færð niður.“

Fyrir vikið lækka eignir aflagðrar starf­semi Samherja Holding úr 16,4 millj­ónum Banda­ríkja­dala (2.444 millj­ónir króna) í 471 þús­und Banda­ríkja­dali (70,2 millj­ónir króna).

Greint frá stöðu rannsókna

Í árs­reikn­ingnum er Namib­íu­málið rakið að ein­hverju leyti. Þar segir að í októ­ber 2019 hafi fyrr­ver­andi starfs­maður erlends dótt­ur­fé­lags Samherja Holding sakað félagið og starfs­menn sam­stæð­unnar um lög­brot, meðal ann­ars um mútur og spill­ingu. Þar er um að ræða upp­ljóstr­ar­ann Jóhannes Stef­áns­son.

Í reikn­ingnum segir að Samherji Holding hafi tekið þessar ásak­anir alvar­lega og að stjórn þess hafi ráðið til sín alþjóð­legu lög­mann­stof­una Wikborg Rein til að fram­kvæma ítar­lega rann­sókn á starf­semi dótt­ur­fé­laga sem tengd­ust starf­sem­inni í Namibíu. „Rannsókn Wikborg Rein var mjög yfir­grips­mikil og voru nið­ur­stöður hennar kynntar stjórn félags­ins í júlí 2020,“ segir í reikn­ingnum en Sam­herj­a­sam­stæðan hafði boðað að nið­ur­stöð­urnar yrðu gerðar opin­berar. Það hefur ekki gerst þrátt fyrir að næstum tvö og hálft ár sé liðið frá því að Wikborg Rein lauk rann­sókn sinni.

Í árs­reikn­ingnum er greint frá því að ásak­an­irnar séu til rann­sóknar hjá yfir­völdum í Namibíu og á Íslandi en að ekki hafi verið höfðað mál á hendur félag­inu né að neinn starfs­maður þess hafi verið ákærður. Fyrir liggur þó að stjórn­völd í Namibíu hafa viljað ákæra þrjá starfs­menn sam­stæð­unnar þar og hafa leitað eftir aðstoð til að fá þá fram­selda, án árang­urs.

Félagið seg­ist hafa mót­mælt öllum ásök­unum um lög­brot og gert grein fyrir sjón­ar­miðum sínum opin­ber­lega. „Það hefur fjallað ítar­lega um hvað fór úrskeiðis í rekstr­inum í Namibíu og hvers vegna. Gripið hefur verið til víð­tækra ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir að slík atvik geti hent á ný. Mik­il­vægir hags­muna­að­ilar sem félagið á í sam­skiptum við, bankar, birgjar og stórir við­skipta­vinir hafa haldið tryggð við félagið.“

Á Íslandi hafi rann­sókn Hér­aðs­sak­sókn­ara haldið áfram með óbreyttum hætti, henni sé ekki lokið og því óvíst hver nið­ur­staða hennar verður. „Starf­semi dótt­ur­fé­laga í Namibíu var lögð niður í árs­lok 2019 og hefur verið lögð áhersla á að dótt­ur­fé­lög Samherja í land­inu muni upp­fylla skyldur sínar gagn­vart namibískum yfir­völdum.“

Tilkynnt til lögreglu í Færeyjum

Í árs­reikn­ingnum er einnig gerð grein fyrir því að Samherji hf., hafi greitt fyrir hönd Sp/f Tind­hólms, dótt­ur­fé­lags Samherja Holding, sam­tals um 17 millj­ónir danskra króna til fær­eyskra skatt­yf­ir­valda vegna óvissu um gildi skatt­frelsis fyrir ákveðna áhafn­ar­með­limi.

Í apríl á þessu ári var greint frá því í fær­eyskum fjöl­miðlum að stærstur hluti þess fjár sem Sam­herji greiddi til fær­eyskra skatta­yf­ir­valda, í kjöl­far þess að fram kom að félagið hefði skráð sjó­menn sem voru við veiðar í Namibíu sem far­menn á flutn­inga­skipum í Fær­eyj­um, hefði verið sendur til íslenskra skatta­yf­ir­valda, alls um 250 millj­ónir króna.

Skatt­yf­ir­völd í Færeyjum til­kynntu Tindhólm til lög­reglu í fyrra vegna máls­ins. Í árs­reikn­ingnum segir að óljóst sé „hvort eða hvernig fær­eysk skatta­yf­ir­völd og lög­regla munu fylgja mál­inu eftir en á árinu 2022 var Sp/F Tind­hólmur úrskurðað gjald­þrota.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár