Íslensk skattayfirvöld sóttu 250 milljónir af fénu sem Samherji greiddi til Færeyja

Síðasta vor greiddi Samherji fær­eyskum skatta­yf­ir­völdum á fjórða hund­rað millj­óna íslenskra króna, vegna þess sem félagið kall­aði „mis­tök“ við skrán­ingu sjó­manna. Skatt­ur­inn á Íslandi hefur nú óskað eftir og fengið jafn­virði 250 millj­óna af fénu til sín.

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.
Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja. Mynd: Skjáskot/RÚV

Stærstur hluti þess fjár sem sjáv­ar­út­vegs­fé­lagið Samherji greiddi til fær­eyskra skatta­yf­ir­valda, í kjöl­far þess að fram kom að félagið hefði skráð sjó­menn sem voru við veiðar í Namibíu sem far­menn á flutn­inga­skipum í Færeyjum, hefur verið sendur til íslenskra skatta­yf­ir­valda.

Færeyska Kringvarpið sagði frá þessu fyrir helgi. Tind­holmur, fær­eyskt dótt­ur­fé­lag Samherja, greiddi tæpar 17 millj­ónir danskra króna til TAKS, fær­eyska skatts­ins, síð­asta vor.

Þá hafði komið fram í fær­eysku heim­ilda­þátt­unum Teir ómettiligu, sem unnir voru í sam­starfi við Kveik Rík­is­út­varps­ins og Wikileaks, að Íslend­ingur úr áhöfn tog­ara í eigu Sam­herja, sem gerður var út í Namib­íu, fékk laun sín greidd frá fær­eyska félag­inu og hefði auk þess verið rang­lega skráður í áhöfn fær­eysks flutn­inga­skips í eigu Sam­herja, en útgerðum býðst 100 pró­sent end­ur­greiðsla á skatt­greiðslum áhafna slíkra skipa.

Þannig er talið að málum hafi verið háttað með fleiri sjó­menn sem unnu fyrir Sam­herja í Namib­íu. Fyrir vikið greiddu sjó­menn­irnir ekki skatta í Namibíu og Sam­herji þurfti því ekki að bæta þeim upp tekju­tap vegna slíkra skatt­greiðslna.

Samherji sagði „mistök“ hafa verið gerð

Í yfir­lýs­ingu og afsök­un­ar­beiðni sem birt­ist á vef Sam­herja 22. júní í fyrra sagði að í ljós hefði komið að „mi­s­tök“ hefðu verið gerð í rekstri Sam­herja, sem tengst hefðu alþjóð­legri skipa­skrá sem haldin væri í Fær­eyj­um.

„Ekki liggur enn fyrir af neinni nákvæmni hver þau mis­tök eru en Sam­herji hefur greitt trygg­ing­ar­fjár­hæð sem verður til staðar þegar nið­ur­staða er feng­in. Við viljum leið­rétta þau mis­tök sem þarna voru gerð og biðj­ast vel­virð­ingar á þeim. Von­andi fæst nán­ari nið­ur­staða í þessi mál fljótt og greið­lega,“ sagði í yfir­lýs­ingu fyr­ir­tæk­is­ins.

[adspot]

Síðar var sagt frá því að Samherji hefði gert kröfu upp á tæpar 17 millj­ónir danskra króna í þrotabú fær­eyska dótt­ur­fé­lags­ins Tind­holms, er það var tekið til gjald­þrota­skipta í ágúst í fyrra.

Aðilarnir sem um ræðir skattskyldir á Íslandi

Í frétt Kringvarps­ins frá því á fimmtu­dag er vísað til skrif­legs svars frá TAKS þar sem fram kemur að af þeim 16,9 millj­ónum danskra króna sem greiddar hafi verið til skatta­yf­ir­valda eyj­anna í maí árið 2021 hafi 13,1 milljón danskra króna verið fluttar til Íslands þar sem ein­stak­ling­arnir sem málið snerti séu skatt­skyldir á Íslandi. „Þetta er gert í sam­ræmi við samn­inga á milli Norð­ur­land­anna um aðstoð í skatta­málum,“ segir í svari fær­eyska skatts­ins til Kringvarps­ins.[links]

Á núvirði er 13,1 milljón danskra króna jafn­virði 250 millj­óna íslenskra króna. Kjarninn hefur sent fyr­ir­spurn til íslenskra skatta­yf­ir­valda og óskað eftir því að fá afhentar allar fyr­ir­liggj­andi upp­lýs­ingar og sam­skipti Skatts­ins við fær­eysk skatta­yf­ir­völd vegna þessa máls.

Lögreglurannsókn í biðstöðu

Færeysk skatta­yf­ir­völd til­kynntu málið til lög­reglu síð­asta vor, en sagt er frá því í frétt Kringvarps­ins að rann­sóknin sé ekki komin af stað. Samkvæmt frétt­inni átti málið að fara í hendur deildar innan dönsku lög­regl­unnar sem skoðar alþjóða- og fjár­mála­glæpi, en sú deild ku hafa verið lögð niður og ný deild stofnuð til að sinna málum af þessum toga.

Laga­breyt­ingu þarf til í fær­eyska þing­inu til þess að fær­eyska lög­reglan geti sent mál til hinnar nýju deildar. Samkvæmt frétt Kringvarps­ins er búist við að slík laga­breyt­ing verði afgreidd á yfir­stand­andi þingi – og þá verði hægt að rann­saka málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár