Mynd: Bára Huld Beck

Árið sem Samherji baðst afsökunar

Opin­berun Kjarnans og Stund­ar­innar á starfs­háttum „skæru­liða­deildar Samherja“ í maí leiddi til þess að stjórn­mála­menn og félaga­sam­tök for­dæmdu fram­færði fyr­ir­tæk­is­ins. Það baðst afsök­unar á fram­göngu sinni.

Sam­herj­­a­­málið komst í hámæli eftir að þáttur Kveiks sem opin­ber­aði starf­semi Sam­herja í Namibíu fór í loftið í nóv­­em­ber 2019 en umfjöll­unin var unnin í sam­­starfi Kveiks, Stund­­ar­inn­­ar, Al Jazeera og Wikileaks.

Í mál­inu er grunur er að um mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Málið hefur verið til rann­sóknar hjá emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og skatta­yf­ir­völdum hér­lend­is. Það er einnig til rann­sóknar í Namibíu þar sem fjöl­margir ein­stak­lingar hafa verið ákærð­ir. Í Fær­eyjum hefur Sam­herji þegar greitt mörg hund­ruð milljón króna í van­gold­ina skatta og meint skatta­snið­ganga fyr­ir­tæk­is­ins þar hefur verið til­kynnt til lög­reglu.

Í könnun sem Stundin fékk MMR til þess að fram­kvæma í jan­úar á þessu ári í tengslum við umfjöllun blaðs­ins um áhrif Sam­herja á nær­sam­fé­lag sitt á Eyja­fjarð­ar­svæð­inu kom fram að 92 pró­sent lands­manna trúðu því að Sam­herji hafi átt aðild að mútu­greiðslum til stjórn­mála- og emb­ætt­is­manna í Namib­íu.

„Skæruliðadeild Samherja“ opinberuð

Samherji brást strax við af hörku eftir að þátt­ur­inn var sýndur. Það lét meðal ann­ars fram­leiða áróð­urs­þætti þar sem bornar voru fram marg­hátt­aðar ásak­anir á hendur þeim blaða­mönnum Kveiks sem unnu þátt­inn, og RÚV sem sýndi hann. Og einn starfs­maður fyr­ir­tæk­is­ins ofsótti Helga Seljan, einn blaða­mann­anna sem stýrði umfjöll­un­inni, með því að elta hann og senda honum ógn­andi skila­boð í gegnum SMS og sam­fé­lags­miðla.

Kjarninn og Stundin birtu í maí 2021 röð frétta­skýr­inga um aðferðir sem Samherji beitti í áróð­urs­stríði vegna þessa máls.

Í umfjöll­un­inni kom fram að Samherji gerði út hóp fólks sem kall­aði sig „skæru­liða­deild Samherja“. Hlutverk þeirra var meðal ann­ars að njósna um blaða­menn, greina tengsl þeirra, safna af þeim mynd­um, og skipu­leggja árásir á þá. Þá var einnig opin­berað að starfs­menn og ráð­gjafar Sam­herja reyndu að hafa áhrif á for­manns­kjör í stétta- og fag­fé­lagi blaða­manna á Íslandi, að starfs­menn Samherja hefðu sett sig í sam­band við fær­eyskan rit­stjóra til að rægja fær­eyska blaða­menn kerf­is­bund­ið, lagt á ráðin um að draga úr trú­verð­ug­leika rit­höf­undar sem gagn­rýndi fyr­ir­tæk­ið, með því að fletta upp eignum hans.

Kjarn­inn greindi frá því að skýr vilji hefði verið til staðar innan Sam­herja til að skipta sér að því hverjir myndu leiða lista Sjálf­stæð­is­flokks í heima­kjör­dæmi fyr­ir­tæk­is­ins og að starfs­menn Sam­herja hefðu verið með áætl­anir um víð­tæka gagna­söfnun um stjórn félaga­sam­taka sem berj­ast gegn spill­ingu. Kjarn­inn greindi líka frá því hvernig Sam­herji hugð­ist bregð­ast við gagn­rýni frá sitj­andi seðla­banka­stjóra á stríðs­rekstur fyr­ir­tæk­is­ins gegn nafn­greindu fólki.

Athæfi Samherja fordæmt víða

Við­brögðin við umfjöll­un­inni voru mikil. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagð­ist telja fram­göngu Sam­herja alger­lega óboð­lega, óeðli­lega og ætti ekki að líð­ast í lýð­ræð­is­sam­fé­lagi. „Við þurfum að átta okkur á því að aðilar sem eru í for­ystu fyrir jafn stórt fyr­ir­tæki og þarna er um að ræða bera ábyrgð gagn­vart sam­fé­lagi sínu og þetta er ekki að bera ábyrgð gagn­vart sam­fé­lag­inu. Svona gera menn ein­fald­lega ekki.“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði: „Svona gera menn einfaldlega ekki.“
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði: „Svona gera menn ein­fald­lega ekki.“

Kristján Þór Júl­í­us­son, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, sagð­ist hafa áhyggjur af því ef það væri eitt­hvað óeðli­legt í gangi, með hvaða hætti fyr­ir­tæki blanda sér í stjórn­mála­bar­áttu ein­stakra stjórn­mála­flokka, verka­lýðs­fé­laga og svo fram­veg­is. „​​Ef fyr­ir­tæki taka með ein­beittum hætti ákvörðun um að fara að beita sér með slíkum hætti er það að allra mati og flestra mati ekki ásætt­an­legt.“

Þing­maður Pírata, Andrés Ingi Jónsson, sagði aðgerðir gegn fjöl­miðla­fólki geta komið niður á kosn­ingum og að það væri stór­hættu­legt að „fjár­sterkt útgerð­ar­fyr­ir­tæki beiti sér með þessum hætti gegn gervöllu gang­verki lýð­ræð­is­ins“. Þing­flokkur hans sendi form­legt erindi til ÖSE vegna máls­ins og kall­aði eftir því að stofn­unin myndi skipu­leggja kosn­inga­eft­ir­lit á Íslandi í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru í haust.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði að hann teldi að Samherji hefði „gengið óeðli­lega fram í þessu máli með sínum afskipt­u­m.“

Alvarleg aðför

Sig­ríður Dögg Auð­uns­dótt­ir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, sagði að hún liti á fram­ferðið sem alvar­lega aðför að kjöri for­manns í fag- og stétt­ar­fé­lagi „sem er algjör­lega ólíð­andi“. Þessi aðför Sam­herja veki einnig upp spurn­ingar um hvernig sam­fé­lagið allt þurfi að bregð­ast við árásum á blaða­menn og fjöl­miðla í ljósi þess að fjöl­miðlar stæðu nú veik­ari fótum en áður til þess að veita nauð­syn­lega mót­spyrnu.

Alþjóða­sam­tökin Transparency International lýstu yfir miklum áhyggjum af því sem fram hefur komið í umfjöll­unum Kjarn­ans og Stund­ar­innar. „Fyr­ir­tæki sem vilja sanna heil­indi sín nota ekki und­ir­förular aðferðir gagn­vart þeim sem segja frá stað­reyndum í þágu almanna­hags­muna.“

Aðal­fundur Rit­höf­unda­sam­bands Íslands for­dæmdi þá „ljótu aðför að mál- og tján­ing­ar­frelsi sem og æru rit­höf­unda og frétta­fólks sem opin­ber­ast hefur síð­ustu daga í fréttum af Sam­herja og þeim vinnu­brögðum sem þar eru stund­uð“.

Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi sögðu í yfir­lýs­ingu telja það „mik­il­vægt að fyr­ir­tækið axli ábyrgð á eigin ákvörð­unum og athöfn­um, stuðli að gagn­sæjum starfs­háttum og góðum sam­skipt­um. Á þeim for­sendum er unnið á vett­vangi SFS og sam­tökin gera sömu kröfu til sinna félags­manna.“

Samherji biðst afsökunar

Samherji sendi frá sér yfir­lýs­ingu vegna máls­ins 30. maí. Þar sagði að ljóst væri að stjórn­endur félags­ins hafi gengið „of lang­t“ í við­brögðum við „nei­kvæðri umfjöllun um félag­ið [...] Af þeim sökum vill Sam­herji biðj­ast afsök­unar á þeirri fram­göng­u.“

Nokkrum vikum síðar, 22. júní, voru birtar heil­síðu­aug­lýs­ingar frá Sam­herja með fyr­ir­sögn­inni „Við gerðum mis­tök og biðj­umst afsök­un­ar“. Um var að ræða bréf sem fjallar um starf­semi útgerð­ar­innar í Namibíu og Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Sam­herja og einn þeirra sem er með rétt­ar­stöðu sak­born­ings í Sam­herj­a­mál­inu, skrif­aði undir bréf­ið.

Afsökunarbeiðni Samherja birtist í prentuðum dagblöðum 22. júní 2021.
Afsök­un­ar­beiðni Samherja birt­ist í prent­uðum dag­blöðum 22. júní 2021.

Þar sagði einnig að „ámæl­is­verðir við­skipta­hætt­ir“ hefði fengið að við­gang­ast í starf­semi útgerðar Sam­herja í Namib­íu. Veik­leikar hefði ver­ið í stjórn­skipu­lagi og lausa­tök sem ekki áttu að líð­ast. „Við brugð­umst ekki við eins og okkur bar. Þetta hefur valdið upp­námi hjá starfs­fólki okk­ar, fjöl­skyld­um, vin­um, sam­starfs­að­il­um, við­skipta­vinum og víða í sam­fé­lag­inu. Við hörmum þetta og biðj­umst ein­læg­lega afsök­un­ar.“

Rannsóknin hélt áfram

Á meðan að allt þetta gekk yfir hélt rann­sókn yfir­valda á meintum glæpum Samherja og starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins áfram.

Kjarninn greindi frá því í októ­ber að rann­sókn á meintum skatta­laga­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar hefði færst yfir til emb­ættis hér­aðs­sak­sókn­ara skömmu áður.

Til við­bótar við rann­sókn­ina á skatta­málum Sam­herja er í gangi umfangs­mikil rann­sókn á meintum stór­felldum efna­hags­brotum sam­stæð­unn­ar, meðal ann­ars mútu­brot og pen­inga­þvætti, í tengslum við starf­semi hennar í Namib­íu. Gögn máls­ins benda til að Sam­herj­a­sam­stæðan hafi greitt að minnsta kosti 1,7 millj­arð króna í mútur fyrir aðgang að kvóta í Namib­íu.

Átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­­ar­­stöðu sak­­born­ings við yfir­­heyrslur hjá emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara frá því að fyrsta lota þeirra hófst í fyrra­sum­­­ar.

Á meðal þeirra er Þor­­steinn Már, sem neit­aði að svara spurn­ingum hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þegar hann var yfir­­heyrður í annað sinn vegna Namib­­íu­­máls­ins í seint í sum­­­ar. Í bókun sem lög­­­maður hans lagði fram fyrir hönd Þor­­steins Más þegar hann var kall­aður til yfir­­heyrslu sagði að ástæða þessa væri sú að for­­stjór­inn hefði fengið tak­­mark­aðar upp­­lýs­ingar um sak­­ar­efn­ið.

Stundin greindi frá því í sept­em­ber að Ingólfur Pét­­ur­s­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­mála­­stjóri Sam­herja í Namib­­íu, hafi líka fengið slíka stöðu við yfir­­heyrslur í sum­­­ar.

Hinir sex sem voru þá kall­aðir inn til yfir­­heyrslu og fengu rétt­­ar­­stöðu sak­­born­ings við hana voru Ingvar Júl­í­us­­son, fjár­­­mála­­stjóri Sam­herja á Kýp­­ur, Arna McClure, yfir­­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­­son, fram­­kvæmda­­stjóri Sam­herja í Namib­­íu, Aðal­­­steinn Helga­­son, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóri Sam­herja í Namib­­íu, Jón Óttar Ólafs­­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­­sókn­­ar­lög­­reglu­­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­­­ljóstr­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2021

Mest lesið undanfarið ár