Vildu nothæfan lista, afgreiða Ásgeir og safna upplýsingum um stjórn samtaka

Í sam­ræðum „skæru­liða­deildar“ Samherja kemur fram að Þor­steinn Már Bald­vins­son vilji ekki að Njáll Trausti Frið­berts­son verði næsti odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þau ræddu einnig að safna upp­lýs­ingum um stjórn sam­taka gegn spill­ingu.

Þann 21. mars síð­ast­lið­inn, fyrir rúmum tveimur mán­uðum síðan, ræddu tveir með­limir hinnar svoköll­uðu skæru­liða­deildar Samherja, Arna Bryndís McClure og Páll Stein­gríms­son, saman um kom­andi próf­kjör Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Þar greindi Páll frá sam­tali sem hann hafi átt við Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, um póli­tík og sagði: „Hann eins og ég vill ekki sjá Njáll í efsta­sæti.“

Umræddur Njáll er Njáll Trausti Frið­berts­son, sitj­andi þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks í kjör­dæm­inu, sem sæk­ist eftir því að verða næsti odd­viti flokks­ins þar nú þegar Kristján Þór Júl­í­us­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hefur til­kynnt að hann fari ekki aftur fram. Arna svarar því að „eng­inn“ vilji fá Njál í fyrsta sætið og Páll lofar að ræða málið við nokkra áhrifa­menn innan flokks­ins.

Þau ræða svo að reyna að „koma saman not­hæfum lista fyrir kjör­dæmið“. Af þeim sem fram­bjóð­endum tví­menn­ing­arnir raða á þann lista end­aði ein­ungis einn ein­stak­lingur í fram­boði í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Því virð­ist lítið hafa gengið hjá „skæru­liða­deild­inni“ að hafa áhrif á fram­boðs­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, sem sýna meðal ann­ars tölvu­póst­sam­skipti og sam­töl milli ein­stak­linga í spjall­for­riti, sést hvernig varn­ar­bar­átta Samherja hefur þró­ast frá því að opin­berun fjöl­miðla á hinu svo­kall­aða Namib­íu­máli – þar sem grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti – varð í nóv­em­ber 2019. Þar er einnig að finna ýmis sam­töl þar sem lagt er á ráðin um að reyna að hafa áhrif á gang mála í stjórn­málum.

Ræddu viðbrögð við viðtali

Þann 23. apríl birt­ist við­tal við Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóra í Stund­inni. Þar sagði hann meðal ann­ars að Íslandi væri „að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum og það er meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá“.

Í við­tal­inu fjall­aði Ásgeir einnig um aðfarir Samherja gagn­vart fimm starfs­mönnum Seðla­banka Íslands, en fyr­ir­tækið kærði starfs­menn­ina fimm, þar á meðal Má Guð­munds­son fyrr­ver­andi Seðla­banka­stjóra, til lög­reglu vorið 2019 eftir að Seðla­bank­inn hafn­aði því að greiða Samherja bætur vegna hins svo­kall­aða Seðla­banka­máls. Það mál hefur til skoð­unar hjá lög­reglu­stjór­anum á Vest­fjörðum.

Ásgeir sagð­ist ekki skilja „hvern and­skot­ann þessi lög­reglu­stjóri þarf að rann­saka og af hverju þessu er ekki bara vísað frá. Ég ótt­ast það að mörgu leyti, í svona eft­ir­lits­stofnun eins og Seðla­bank­inn er, að við lendum í því að við verðum hund­elt per­sónu­lega eins og farið var á eftir þessu starfs­fólki.“

Greint var frá því opin­ber­lega eftir að við­talið við Ásgeir birt­ist að kæru Samherja til lög­reglu hefði verið vísað frá í mars, en að Samherji hefði kært þá nið­ur­stöðu til rík­is­sak­sókn­ara.

Ásgeir sagði enn fremur í við­tal­inu að það væri ótækt að einka­fyr­ir­tæki eins og alþjóð­legi útgerð­ar­ris­inn Samherji gæti ráð­ist per­sónu­lega að ríkis- og emb­ætt­is­mönnum með þeim hætti sem hann taldi að hefði átt sér stað. „Ég er mjög ósáttur við þennan anga af þessu Sam­herj­a­máli: Að farið hafi verið svona per­sónu­lega á eftir þessu fólki.[...]Eitt er að fara gegn stofn­un­inni, það er hægt að berja á þess­ari stofnun eða mér sem fram­kvæmda­stjóra hennar. En ég er mjög ósáttur við að farið sé á eftir ein­staka starfs­mönnum með þessum hætti. Það má alveg berja á þess­ari stofnun, hún er virki, en það má ekki gera þetta svona per­sónu­lega gegn fólki.“

Þetta við­tal var rætt í hóp­spjalli þeirra Örnu, Páls og Þor­bjarnar Þórð­ar­sonar, lög­manns og ráð­gjafa Samherja, sem stofn­aður var um miðjan síð­asta mánuð og fékk nafnið „PR Namibia“.

Ætluðu að afgreiða seðlabankastjóra í 250 orðum

„Ég skil ekki Ásgeir,“ segir einn með­limur hóps­ins og í kjöl­farið er rætt hvort Samherji eigi ekki að svara seðla­banka­stjóra. Þorbjörn segir að verið séð að athuga hvort „einn alls ótengdur okkur ætli að skrifa“. Síðan er skrifað inn í spjallið að það sé „full­kom­lega ástæðu­laust að veita emb­ætt­is­mönnum frið­helgi fyrir lög­brotum. Þeir verða að axla ábyrgð á sínum emb­ætt­is­færslum ef þeir hafa farið á svig við lög.“

Það væri hægt að „afgreiða Ásgeir í 250 orðum. (Leiðarar í Fbl. eru 450-500).[...]Það væri hægt að gera þrjár mis­mun­andi útgáfur af grein­inni, með svip­uðu inn­taki en ólíkum stíl og áherslum, og birta í sömu vik­unni í þremur ólíkum miðlum. Vísi, Mbl og Frétta­blað­inu.“

Vildu safna upplýsingum um stjórn samtaka gegn spillingu

Síðar saman dag sendi Íslands­deild Transparency International, alþjóð­legra sam­taka gegn spill­ingu, frá sér til­kynn­ingu vegna fram­gangs Samherja í tengslum við frétta­flutn­ing og eft­ir­lits með starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins. „Fyr­ir­tækið hefur fjár­magnað áróð­urs­þætti til birt­inga, fjár­magnað bóka­skrif í áróð­ur­stil­gangi og haldið úti for­dæma­lausu túlk­un­ar­stríði á sög­unni. Jafnvel á nefnd­ar­fundum Alþingis hafa full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins sýnt af sér hegðun sem engum er sæm­andi. Í Namib­íu­mál­inu hefur fyr­ir­tækið brugð­ist við með sams­konar hætti og raunar gefið í. Full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins hafa ógnað og njósnað um ein­stak­linga sem fjallað hafa um málið, kostað áróð­urs­mynd­bönd til almenn­ings þar sem hreinum og klárum ósann­indum er haldið fram og ítrekað hafa verið leið­rétt. Fram­ganga fyr­ir­tæk­is­ins getur ekki talist innan eðli­legra marka,“ sagði meðal ann­ars í til­kynn­ing­unni.

Páll Stein­gríms­son spyr félaga sína í „PR Namibia“-hópnum í kjöl­far þess að til­kynn­ingin birt­ist hverjir séu í for­svari fyrir Íslands­deild sam­tak­anna Transparency International. Honum er bent á að spyrja: „þmb [Þorstein Má Bald­vins­son] út í þetta fólk. Hann veit allt um ansi mörg þeirra[...]og Jónas út í guðr­unu [Johnsen, for­mann stjórnar Transparency International á Íslandi]. Hann þekkir eitt­hvað út í hennar for­sögu“. Umræddur Jónas er Sig­ur­geirs­son og rekur Almenna bóka­fé­lagið sem gaf meðal ann­ars út bók­ina Gjald­eyr­is­eft­ir­litið – vald án eft­ir­lits?, þar sem fjallað var með afar nei­kvæðum hætti um rann­sókn Seðla­banka Íslands á Samherja sem hófst árið 2012. Samherji keypti stórt upp­lag af bók­inni og gaf starfs­fólki sínu í jóla­gjöf. Jónas var upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings fyrir banka­hrun og er giftur Rósu Guð­bjarts­dóttur, bæj­ar­stjóra í Hafn­ar­firði og odd­vita Sjálf­stæð­is­flokks­ins þar. Guðrún Johnsen, sem er doktor í hag­fræði, vann meðal ann­ars að gerð skýrslu Rann­sókn­ar­nefndar Alþingis, skrif­aði bók um íslenska banka­hrunið, sat í stjórn Arion banka í átta ár, hefur starfað sem efna­hags­ráð­gjafi VR og starfað í aka­demíu í rúm 20 ár.

Búin að ýta og ýta á á Þorstein Má

Tveimur dögum síðar, 26. apríl, deilir Páll Stein­gríms­son þremur hlekkjum inn í „PR-Namibia“-hóp­inn. Einum með stöð­upp­færslu eftir Loga Ein­ars­son, for­mann Sam­fylk­ing­ar­innar, á Facebook þar sem hann sagði meðal ann­ars að „við­brögð stjórn­enda Samherja í kjöl­far Seðla­banka­máls­ins og Namib­íu­skjal­anna gefa t.d. til­efni til að ætla að þeir telji sig lúta öðrum lög­málum og annað fólk[...]Árásir Samherja á ein­staka emb­ættis- og blaða­menn taka svo hlut­ina alveg á nýtt og áður óþekkt stig og grafa undan því að fólk sem sinnir eft­ir­liti og aðhaldi geti sinnt störfum sínum óhrætt.“

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja. Mynd: RÚV/Skjáskot
Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja. Mynd: RÚV/Skjáskot

Annar hlekkur er stöðu­upp­færsla eftir Kolbein Ótt­ars­son Proppé, þing­mann Vinstri grænna, þar sem hann segir Samherja vera að nýta auð sinn í „enda­lausar árásir gegn frétta­manni sem þeim finnst hafa verið sér óþægur ljár í þúfu. Og í leið­inni að allri frétta­stofu RÚV. Auð sem þeir hafa öðl­ast við að nýta sam­eig­in­lega auð­lind þjóð­ar­innar. Og sækja að ein­staka starfs­mönnum Seðla­bank­ans. Þetta er ljótt. Smá­sál­ar­legt. Þrá­hyggjan er slík að manni verður ein­fald­lega illt að fylgj­ast með þessu.“

Þriðji hlekk­ur­inn er grein eftir Jóhann Pál Jóhanns­son, fram­bjóð­anda Sam­fylk­ing­ar­innar og fyrr­ver­andi blaða­mann. Í grein­inni skrif­aði Jóhann Páll meðal ann­ars að stjórn­mála­menn hafi með­vitað gelt eft­ir­lits­stofn­anir með útgerð­inni og með aðgerðum sínum búið til ofur­stétt­ina sem eigni sér fisk­inn í sjónum. „Olíg­ar­k­ana sem eitra og skekkja þjóð­mála­um­ræðu á Íslandi með því að kaupa upp fjöl­miðla og póli­tíkusa og reka áróð­urs­stríð gegn blaða­mönnum, emb­ætt­is­mönnum og eft­ir­lits­stofn­unum, hverjum þeim sem ógna sér­hags­munum þeirra. Olígarka sem virð­ast ein­fald­lega hafa sagt sig úr lögum við sam­fé­lagið okkar. Yfir­gang­ur­inn mun halda áfram að eitra út frá sér og bitna á okkur öllum meðan sam­herjar Samherja stjórna Íslandi.“

Arna svarar með inn­leggi þar sem segir: „Nú þarf efn­is­leg svör. Ég er búin að ýta og ýta í þmb [Þorstein Má Bald­vins­son]“. Í kjöl­farið segir hún að það sé lítið mál „að svara kjaftæð­inu í frænda mínum“, en þar á hún við Jóhann Pál, en langamma Örnu og amma Jóhanns Páls voru systur. Hún beinir svo fyr­ir­spurn til Þor­bjarnar og spyr hvort hann geti „ekki hent upp svörum á fíflið hann frænda minn?“

Nokkru síðar svarar Þorbjörn: „Klárt“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár