Skæruliðadeild Samherja sem vill stinga, snúa og strá svo salti í sárið

Hluti þess hóps sem rekur áróð­urs­stríð Samherja gegn blaða­mönnum og ákveðnum fjöl­miðlum sem fjallað hafa um fyr­ir­tækið lýsir sér í sam­tölum sem „skæru­liða­deild Samherja“. Einn þeirra seg­ist bara vera „eitt tann­hjól í góðri vél“.

Þann 20. nóv­em­ber 2019, tæpri viku eftir að umfjöllun Kveiks, Stund­ar­innar, Wikileaks og Al Jazeera um Samherja og atferli fyr­ir­tæk­is­ins í Namibíu birt­ist, sendi Margrét Ólafs­dóttir, rit­ari Þor­steins Más Bald­vins­sonar, sem hafði þá nýlega stigið til hliðar úr for­stjóra­stóli Samherja, póst til Þor­björns Þórð­ar­sonar, fyrr­ver­andi fjöl­miðla­manns.

Þorbjörn hafði í byrjun júlí sagt upp störfum hjá frétta­stofu Stöðvar 2 eftir rúman ára­tug í fjöl­miðlum, og sagði við það til­efni við mbl.is að hann ætl­aði sér að hefja störf á nýrri lög­manns­stofu 1. sept­em­ber 2019, eft­ir að hafa fengið mál­flutn­ings­rétt­indi fyr­ir hér­aðs­dómi skömmu áður. „Það var komið að þeim tíma­punkti hjá mér að ég þurfti nýja áskor­un og lög­mennsk­an hef­ur alltaf heillað.“

Í nóv­em­ber var Þorbjörn kom­inn til starfa fyrir Samherja. Margrét Ólafs­dóttir kynnti hann með eft­ir­far­andi hætti í tölvu­pósti: „Til uppl. Þorbjörn er okkar PR ráð­gjafi.“

Póst­ur­inn var til Páls Stein­gríms­sonar, skip­stjóra hjá Samherja, til að láta hann vita að Þorbjörn hefði verið ánægður með til­lögu sem Margrét hafði lagt fyrir hann. Tillagan var eft­ir­far­andi: „Ég fékk skila­boð frá einum af skip­stjór­unum okkar Páli Stein­gríms­syni. Hann hefur verið mjög „aktífur“ að skrifa bæði í blöð og á sam­fé­lags­miðlum og getur svarað fyrir sig. Hann sem sagt býður fram krafta sína ef við þurfum nafn á ein­hver skrif.“

Heiti tölvu­pósts sem Margrét hafði sent á Þorbjörn, og áframsendi nú á Pál, var „Nafn á skrif“.

Þorbjörn svar­aði: „Frábært að vita af þessu. Ég vista núm­erið hans og net­fang. Mér finnst mjög lík­legt að þetta nýt­ist.“

Farið í stríð

Grein­arnar sem Páll hafði áður skrifað fjöll­uðu flestar með jákvæðum for­merkjum um ríkj­andi skipu­lag í sjáv­ar­út­vegi og með þókn­an­legum hætti um þá sem stýra málum innan þeirrar atvinnu­greinar. Í tölvu­póst­sam­skiptum sem Kjarninn hefur fengið aðgang að sést að Páll hefur skrifað greinar, og sett ummæli á sam­fé­lags­miðla, í sam­starfi við fólk úr efsta lag­inu hjá Samherja. Þá las starfs­maður Lands­sam­bands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) yfir greinar hans um skeið. Nafni sam­bands­ins var breytt í Samtök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS) fyrir nokkrum árum og þegar áður­nefndur starfs­maður hætti störfum fyrir hags­muna­sam­tökin tók Benedikt Sig­urðs­son, núver­andi upp­lýs­inga­full­trúi SFS, við og las yfir greinar fyrir Pál.

Þorbjörn Þórðarson var fréttamaður á Stöð 2 árum saman. Hann hætti störfum þar sumarið 2019 og réð sig skömmu síðar í störf fyrir Samherja.
Þorbjörn Þórð­ar­son var frétta­maður á Stöð 2 árum saman. Hann hætti störfum þar sum­arið 2019 og réð sig skömmu síðar í störf fyrir Samherja.

Samstarf Þor­björns og Páls, sem voru leiddir saman af efsta lagi stjórn­enda og eig­enda Samherja, hófst form­lega þann 1. des­em­ber 2019 þegar Páll skrif­aði grunn að grein sem bar yfir­skrift­ina „Saklaus uns sekt er sönnuð“. Fjórum dögum fyrr sendi Páll grein­ina á Þorbjörn og skrif­aði í tölvu­pósti: „Þú með­höndlar þetta eins og þér henntar.“

Degi síðar sendi Þorbjörn grein­ina til baka og skrif­aði með: „Ég breytti eig­in­lega öllu í grein­inni en merk­ingin er sú sama.“

Páll þakk­aði Þorbirni fyrir og degi síðar, 3. des­em­ber, sendi hann grein­ina til Mar­grétar Ólafs­dóttur, sem sér um öll tölvu­póst­sam­skipti fyrir Þorstein Má, með eft­ir­far­andi skila­boðum: „Sendi þér mín fyrstu skref í þess­ari bar­áttu okkar.“ Skömmu síðar sendi hann grein­ina líka á Kristján Vil­helms­son, útgerð­ar­stjóra Samherja.

Þorbjörn sendi svo leið­bein­ingar á Pál um hvert greinin ætti að fara til birt­ingar og hún birt­ist loks á Vísi þann 5. des­em­ber 2019. Í end­an­legri útgáfu hennar var um tíu pró­sent eftir af þeim drögum sem Páll hafði upp­haf­lega skrifað. Hann er þó einn skrif­aður fyrir grein­inni.

Stríðið var hafið.

Helstu stjórnendur beinir þátttakendur

Í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum, sem sýna meðal ann­ars tölvu­póst­sam­skipti og sam­töl milli ein­stak­linga í spjall­for­riti, sést hvernig varn­ar­bar­átta Samherja hefur þró­ast frá því að opin­berun fjöl­miðla á hinu svo­kall­aða Namib­íu­máli – þar sem grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti – varð í nóv­em­ber 2019.

Gögnin sýna að margir ein­stak­lingar innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar koma beint að öllum við­brögðum við þeim frétta­flutn­ingi og öðrum sem fylgt hafa í kjöl­farið. Þar ber að nefna, til við­bótar við áður­nefnda Þorstein Má og Kristján, Baldvin Þor­steins­son, for­stjóra Samherja í Evrópu, son Þor­steins Más og einn helsta eig­andi Samherja á Íslandi, Björgólf Jóhanns­son, sem sett­ist um tíma í for­stjóra­stól Samherja eftir að Namib­íu­málið kom upp, Örnu Bryndísi McClure, yfir­lög­fræð­ing Samherja til margra ára, og Óskar Magn­ús­son, sem situr í stjórn Samherja og hefur verið náinn ráð­gjafi Þor­steins Más árum saman. Þor­steinn Már og Arna eru á meðal þeirra sex núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­manna Samherja sem fengu rétt­ar­stöðu sak­born­ings við yfir­heyrslur hjá sér­stökum sak­sókn­ara í fyrra. Í mál­inu er grunur um að mútu­greiðslur hafi átt sér stað, meðal ann­ars til erlendra opin­berra starfs­manna. Auk þess er grunur um brot á ákvæði almennra hegn­ing­ar­laga um pen­inga­þvætti og brot á ákvæði sömu laga um auðg­un­ar­brot.

Ráð­gjaf­inn og einka­spæj­ar­inn Jón Óttar Ólafsson leikur stórt hlut­verk á bak­við tjöldin og það gerir áður­nefndur Þorbjörn Þórð­ar­son einnig. En þeim sem oft­ast er att út á for­aðið með skrif og mein­ingar ofan­greinds hóps er skip­stjór­arnum Páli Stein­gríms­syni.

Páll Steingrímsson hefur verið titlaður höfundur fjölmargra greina sem birst hafa á Vísi undanfarin ár. Í greinunum eru iðulega blaðamenn eða fjölmiðlar til umfjöllunar.
Páll Stein­gríms­son hefur verið titl­aður höf­undur fjöl­margra greina sem birst hafa á Vísi und­an­farin ár. Í grein­unum eru iðu­lega blaða­menn eða fjöl­miðlar til umfjöll­unar.

Í sam­tali milli Örnu og Páls er ítrekað vísað til þess að þau séu, ásamt öðrum starfs­mönnum og ráð­gjöfum Samherja, hluti af því sem þau kalla „skæru­liða­deild Samherja“ sem vinni hörðum höndum á bak­við tjöldin í því stríði sem þau telja sig standa í.

„Mennirnir hafa gefið grænt ljós“

Þegar leið að jólum 2019 skipt­ust þeir Þorbjörn og Páll á ýmsum upp­lýs­ingum um efni sem gæti not­ast til að koma höggi á þá fjöl­miðla sem Samherji hafði, og hefur, í sigti sínu, ásamt lista­mönnum og stjórn­mála­mála­mönnum.

Næstu mán­uði fór bar­átta Samherja þó að mestu fram í gegnum birt­ingar á ýmsum yfir­lýs­ingum og til­kynn­ingum á heima­síðu fyr­ir­tæk­is­ins, þeirri sömu og við­skipta­vinir hennar fletta upp þegar þeir þurfa að nálg­ast upp­lýs­ingar um Samherja. Alls birt­ust vel á annan tug slíkra efna á þeim vett­vangi frá nóv­em­ber 2019 og fram á vor árið eftir. Flest fjöll­uðu um Helga Seljan eða RÚV.

Um sum­arið 2020 var svo komið að næstu skrefum. Í byrjun júní unnu Arna og Þorbjörn saman að upp­færslu á drögum að grein sem á end­anum var birt í nafni Páls og bar fyr­ir­sögn­ina „Rit­sóð­inn Helgi Seljan“.

Kvöldið áður en greinin birt­ist á Vísi sendi Þorbjörn póst á Pál með upp­færðri grein. Þar sagði meðal ann­ars: „Menn­irnir hafa gefið grænt ljós á grein­ina í þess­ari mynd svo þú mátt senda grein­ina á greinar@visir.is þegar þú ert búinn að afrita þetta í Word-skjal og vista.“

Meg­in­inni­hald grein­ar­innar var tján­ing Helga Seljan á sam­fé­lags­miðlum. Ástæða þess að Páll átti að setja grein­ina í nýtt Word-skjal og vista var að fela staf­ræn fingraför Þor­bjarnar á grein­inni.

„Bara eitt tannhjól í góðri vél“

Nokkrum dögum síðar hófst ferlið á ný. Aftur var fram­kvæmdin svipuð. Páll skrif­aði gróf drög að grein, Þorbjörn breytti þeim umtals­vert og svo var beðið. Í tölvu­pósti sem sendur var degi áður en greinin birt­ist sagði Þorbjörn: „Kíktu á þetta en ekki senda neitt inn til birt­ingar fyrr en þú færð grænt ljós frá mér. Ég á eftir að láta menn­ina lesa þetta yfir.“ Páll svarar honum og segir: „Já sæll þú hefur lagt mikla vinnu í þetta og já ég bíð rólegur er bara eitt tann­hjól í góðri vél.“

Græna ljósið frá „mönn­unum“ kom 13. júní, eftir að Arna hafði bætt við punktum, og degi síðar birt­ist annar hluti greinar­aðar í nafni Páls, „Rit­sóð­inn Helgi Seljan II“, á Vísi.

Næsta grein birt­ist 11. júlí á vef Mannlífs. Hún fjall­aði um Ólaf Örn Jónsson, oft kall­aður Óli Ufsi, í kjöl­far þess að hann hafði greint frá því að hann teldi sig hafa misst störf vegna and­stöðu sinnar við kvóta­kerfið. Greinin bar fyr­ir­sögn­ina „Þrá­hyggja Ólafs Arnar Jóns­sonar“ og Páll er skrif­aður einn fyrir henni.

Nú sner­ust hlut­verkin hins vegar við. Þorbjörn skrif­aði drögin og Páll gerði nokkrar breyt­ingar, áður en Þorbjörn upp­færði hana á ný.

Þremur dögum síðar, 14. júli birt­ist svo greinin „Hvar eru störfin sem glöt­uð­ust í Namibíu“ sem Páll er skrif­aður fyrir. Þar er spjót­unum áfram beint að Helga Seljan auk þess sem Kristinn Hrafns­son, sem starfar hjá Wikileaks og kom að Namibíu-mál­inu, er einnig til nei­kvæðrar umfjöll­unar. Í aðdrag­anda þeirrar birt­ingar áttu sér stað kunn­ug­leg vinnu­brögð. Þorbjörn sendi póst þar sem stóð meðal ann­ars: „Þessi pist­ill er hugs­aður fyrir Vísi. Ég ætla að senda þetta á menn­ina og fá álit þeirra. Svo þegar við höfum fengið grænt ljós þá sendir þú pistil­inn inn.“

Myndbandaframleiðslan hefst

Í ágúst 2020 hófst birt­ing mynd­banda á vegum Samherja þar sem Helgi Seljan hefur verið helsti skot­spónn­inn. Mynd­böndin hafa birst reglu­lega alla tíð síðan og eru í dag orðin 13 tals­ins. Gögnin sem Kjarninn hefur undir höndum benda til þess að fleiri hafi verið fram­leidd en hafi þegar verið birt, en að hluti þess hóps sem tekur þátt í áróð­urs­stríð­inu hafi lagst gegn frek­ari birt­ingu.

Skjáskot úr einu myndbandi Samherja um Helga Seljan. Í því var birt leynileg upptaka af samtali við Helga. Mynd: Skjáskot/Youtube
Skjáskot úr einu mynd­bandi Samherja um Helga Seljan. Í því var birt leyni­leg upp­taka af sam­tali við Helga. Mynd: Skjáskot/Youtube

Í sama mán­uði birt­ist næsta grein Páls á Vísi. Henni var beint að Svavari Hall­dórs­syni, fyrr­ver­andi blaða­manni og eig­in­manni Þóru Arn­órs­dóttur, rit­stjóra Kveiks. Fyr­ir­sögn hennar var „Athuga­semdin sem Svavar Hall­dórs­son eyddi“. Hún skír­skotar í að Svavar hafi eytt ummælum sem skrifuð voru í nafni Páls við stöðu­upp­færslu hans á Facebook. Ummælin voru skrifuð af Þorbirni og send til Páls til birt­ingar. Sömu sögu er að segja um grein­ina sem birt­ist á Vísi. Þetta er hægt að sjá í tölvu­póstum sem til­heyra þeim gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum.

Sama fyr­ir­komu­lag var við­haft við birt­ingu næstu greinar, sem birt var 2. októ­ber 2020 með fyr­ir­sögn­inni „Þögn Aðal­steins“. Umræddur Aðal­steinn er Kjart­ans­son og var hluti af því Kveik­steymi sem vann umfjöll­un­ina um Namib­íu­málið. Degi fyrir birt­ingu sendi Þorbjörn tölvu­póst á Pál þar sem honum var sagt að afrita text­ann í Word-skal, en slíkt kemur í veg fyrir að hægt sé að sjá hver höf­undur upp­runa­lega skjals­ins sé.

Kjarninn næstur í röðinni

Skammur tími leið þar til að næsta grein tvíeyk­is­ins rataði á Vísi. Páll sendi Þorbirni upp­kast sem Þorbjörn end­ur­skrif­aði að nán­ast öllu leyti, en inn­tak grein­ar­innar var að Kjarninn hefði ekki birt frétt um upp­boð á afla­heim­ildum í Namibíu. Kjarninn birti hins vegar slíka frétt nokkrum klukku­stundum áður en grein Þor­bjarnar og Páls, „Þögn um upp­boð“, birt­ist.

Á meðal helstu breyt­inga sem Þorbjörn gerði á grein­inni voru þær að bæta við kafla undir milli­fyr­ir­sögn­inni: „Margþætt tengsl RÚV og Kjarnans“. Þar end­ur­tók hann upp­lýs­ingar úr skjölum sem „skæru­liða­deildin“ hafði safnað saman um nafn­greint fjöl­miðla­fólk.

Þann 23. októ­ber birt­ist svo grein á Vísi með fyr­ir­sögn­inni „Grímu­laus and­staða Helga Seljan við Samherja“ sem sér­stök umfjöllun er um hér að neðan.

Á þessum tíma hafði Samherji kært alls ell­efu starfs­menn RÚV til siða­nefndar rík­is­fjöl­mið­ils­ins vegna ummæla sem þeir höfðu sett fram á sam­fé­lags­miðlum, í flestum til­vikum sem við­bragð við árásum Samherja á sam­starfs­menn þeirra. Greinin fjall­aði að uppi­stöðu um að tján­ing Helga Seljan á sam­fé­lags­miðlum væri í and­stöðu við siða­reglur RÚV.

Þegar kæra Samherja barst til siða­nefndar RÚV þá lá fyrir að end­ur­skoða ætti regl­urnar, enda hafði fyrri siða­nefnd talið að hún gæti ekki starfað eftir þeim og starfs­menn RÚV ótt­uð­ust að hægt væri að nota regl­urnar til að þagga niður í frétta­flutn­ingi. Þrátt fyrir þetta ákvað yfir­stjórn RÚV að skipa nýja siða­nefnd til að takast ein­ungis á við kæru Samherja og nið­ur­staða hennar var að Helgi hefði gerst brot­legur við siða­reglur með fjórum ummælum á sam­fé­lags­miðlum. Aðrir kærðir voru sýkn­aðir.

„Aðkeyptu mennirnir“ hafi ekkert til málanna að leggja

Nokkuð skýrt er á þeim sam­tölum sem eiga sér stað í mis­mun­andi hópum meng­is­ins að hluti hans vill ganga lengra en aðrir. Þar er helst um Örnu og Pál að ræða og í einu sam­tali þeirra kvartar Arna yfir því að Óskar Magn­ús­son haldi sér utan við allt. Hún segir karl­rembu ein­kenna hóp­inn sem taki ákvarð­anir og að þeir séu hræddir við sterkar konur. „Þmb [Þor­steinn Már Bald­vins­son] þarf bara að taka aftur völdin.“

Í öðru sam­tali í upp­hafi árs 2021 ræða þau áfram þessa stöðu. Þá segir Páll: „Bubbi [Björgólfur Jóhanns­son] og Þorbjörn eru að reyna að gera sig breiða og eru alltaf að taka upp hug­myndir frá öðrum kemur ekk­ert frá þeim okkur til hags­bóta.“ Arna svarar honum og segir að „aðkeyptu menn­irnir hafa ekk­ert til mál­anna að leggja“ og bætir við „ég þoli ekki að það sé ekki hægt að vinna saman. Ég hata þessa typpa­keppni“.

Björgólfur Jóhannsson er einn hinna „aðkeyptu“ manna sem eru gagnrýndir í gögnunum.
Björgólfur Jóhanns­son er einn hinna „aðkeyptu“ manna sem eru gagn­rýndir í gögn­unum.

Um miðjan febr­úar 2021 skrifa Páll og Arna grein sem þau vilja birta en Þorbjörn breytir veru­lega. Páll er ósáttur með það og sendir Margréti Ólafs­dóttur, rit­ara Þor­steins Más, tölvu­póst og biður hana að koma honum á „hlut­að­eig­andi“. Þar stendur meðal ann­ars: „Þið ráðið för en ég hef hins vegar lofað sjálfum mér þvi að setja ekk­ert fram í mínu nafni sem ég er ósáttur við.“ Af sam­skiptum Páls við Þorstein Má á spjall­þræði þeirra tveggja má ráða að Páli hafi helst þótt greinin of bit­laus.

„Nú þarf að snúa og svo salta í sárið“

Síðasta grein Páls sem birt var á vef Vísi heitir „Hræsni góða fólks­ins“. Líkt og með ýmsar aðrar greinar þá voru drög skrifuð af Páli, tölu­verðu bætt við af Örnu og þaðan var hún send til Björg­ólfs til sam­þykkis. Það gerð­ist rúmum einum og hálfum mán­uði eftir að til­kynnt var um að Björgólfur væri hættur sem for­stjóri Samherja. Greinin var svo end­ur­skrifuð af Þorbirni og send aftur til Páls með leið­bein­ingum um hvernig eigi að koma í veg fyrir að staf­ræn fingraför hans séu á grein­inni.

Hún birt­ist 29. mars 2021 og fjallar að mest um við­brögð sem urðu við nið­ur­stöðu siða­nefndar RÚV í mál­inu gegn Helga Seljan.

Í kjöl­far birt­ing­ar­innar ræddu Arna og Páll saman um að það væri enn nóg til í vopna­búr­inu til að nudda RÚV upp úr. Arna skrif­aði: „Vona að óskar bubbi og Þorbjörn standi við það sem þeir hafa sagt við þig, að gefa ekki eftir. Við erum búin að stinga. Nú þarf að snúa og svo salta í sárið.“

Páll svar­aði: „Stundum vildi ég óska þess að það væri meira af yfir­mönnum hjá þessu fyr­ir­tæki sem hefðu sömu hugsun og þú.“

Fyr­ir­vari rit­stjóra Kjarnans: Höfundar frétta­skýr­ing­ar­innar, umfjall­anir þeirra tengdar Samherja og Kjarninn í heild eru á meðal þess sem fjallað er um í greinum sem Páll Stein­gríms­son er skrif­aður fyrir. Rit­stjóri Kjarnans er auk þess á meðal þeirra sem eru til umfjöll­unar í sam­tölum sem má finna í þeim gögnum sem þessi frétta­skýr­ing bygg­ist á. Þá er að finna mynd af honum í gögn­unum og skjal þar sem flestir starfs­menn Kjarnans eru upp­taldir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið undanfarið ár